Reykjavíkurmótið í loftgreinum

Laugardaginn 7. nóvember hélt Skotfélag Reykjavíkur Opið Reykjavíkurmót í loftskammbyssu og loftriffli í opnum flokki fullorðinna, þ.e. allir keppa saman án tillits til styrkleikaflokks, annars vegar og flokki unglinga hinsvegar.

21 keppandi, þar af einn í sérflokki, tóku þátt í loftskammbyssu en 6 í loftriffli, þar af einn unglingur. Margir náðu sínum besta árangri og færðust upp um flokk (styrkleikaflokk). Úlfar Sigurbjarnarson náði 577.1 stigum og bætti Íslandsmetið í loftriffli í drengjaflokki.

Úrslit í loftskammbyssu:
Adam Ingi Höybye Franksson – Skotíþróttafélagi Kópavogs – 540 stig
Bjarki Sigfússon – Skotíþróttafélagi Kópavogs – 537 stig
Jórunn Harðardóttir – Skotfélagi Reyjavíkur – 533 stig

Úrslit í liðakeppni í loftskammyssu:
Skotíþróttafélag Kópavogs A-lið – 1.601 stig.
Skotdeild Keflavíkur – 1.535 stig.
Skotíþróttafélag Kópavogs B-lið – 1.466 stig.


Úrslit í loftriffli:
Jórunn Harðardóttir – Skotfélagi Reyjavíkur – 587,3 stig
Sigurbjörn Jón Gunnarsson – Skotfélagi Reyjavíkur – 573,0 stig
Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir – Skotgrund Skotfélag Snæfellsness – 569,6 stig

Úrslit í loftriffli – unglingar:
Úlfar Sigurbjarnarson – SR – 577.1 stig.

Gaman var að sjá hversu margir sáu sér fært að mæta og þakkar Skotfélag Reykjavíkur öllum kærlega fyrir þáttökuna og til hamingju með árangurinn.

Fleiri myndir af mótinu er að finna á Facebook síðu Skotfélags Reykjavíkur.

Góður árangur í upphafi tímabils og spennandi keppnistímabil fram undan!

Efstu lið í liðakeppni í loftskammbyssu