Þjálfaramenntun ÍSÍ í fjarnámi hefst 5.febrúar Skoða sem PDF skjal
Mánudagur, 22. janúar 2024 12:33

isi-logo_2024Vorfjarnám ÍSÍ hefst mánudaginn 5. febrúar nk og verður í boði að taka 1. og 2. stig þjálfaramenntunar ÍSÍ.  Fyrsta stigið tekur átta vikur en annað stigið tekur fimm vikur.

Námið er almennur hluti menntakerfisins og gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Sérgreinaþátt þjálfaramenntunarinnar sækja þjálfarar hjá viðkomandi sérsambandi ÍSÍ hverju sinni.

Skráning á Abler: www.abler.io/shop/isi
Skráningarfrestur til 4. febrúar!

Nemendur velja rétt námskeið og ganga frá greiðslu námskeiðsgjaldsins í heimabanka.  Þeir sem ekki hafa skráð sig áður í Abler þurfa að búa til nýjan aðgang undir „Nýr notandi“.
Námskeiðsgjald:
1. stig kr. 36.000.-
2. stig kr. 30.000.-
Þjálfarar sem koma frá Fyrirmyndarfélögum ÍSÍ fá kr. 5000.- í afslátt.

Allar nánari upplýsingar um fjarnámið og þjálfaramenntun ÍSÍ má finna inn á heimasíðu ÍSÍ og hjá Viðari Sigurjónssyni í síma 514-4000 & 863-1399 og/eða á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Dæmi um svör frá nemendum í fjarnámi ÍSÍ þegar þeir voru spurðir út í helstu kosti námsins:
„Mjög vel sett upp, skiljanlegt, aðgengilegt og áhugavert”
„Vel skipulagt og alltaf hægt að fá svör frá kennara ef eitthvað er óljóst”
„Allt kom skýrt fram, farið ítarlega í efnið og verkefnin voru hæfilega erfið”
„Ótrúlega fjölbreytt og skemmtilegt nám, komið inn á marga þætti sem ég hafði t.d. ekki pælt mikið í

AddThis Social Bookmark Button
 

Á Döfinni

Auglýsing
Álfsnes - leiðarvísir
Auglýsing
Álfsnes - Skotsvæði
Auglýsing
Egilshöll - 50m salur
Auglýsing
Egilshöll - Loftbrautir