Sunnudagur, 12. janúar 2025 16:50 |
Félagið verður með opna æfingu og kynningu á Ólympískri skotfimi með rifflum og skammbyssum í Egilshöllinni laugardaginn 18. janúar n.k. kl. 12-14. Á staðnum verða þjálfarar og leiðbeinendur félagsins. Kennt verður annars vegar á nýuppsettan búnað sem félagið hefur fjárfest í með stuðningi Íþróttasjóðs ríkisins. Um er að ræða ljósgeislabyssur sem engin hætta stafar af.
Ungmenni eldri en 15 ára og fullorðnir geta prófað loftriffil og loftskammbyssu. Börn og ungmenni undir 18 ára aldri þurfa að framvísa skriflegri heimild frá foreldrum sem má nálgast hérna eða mæta með forráðamanni.
|