Jórunn hefur lokið keppni í loftriffli
Jórunn Harðardóttir keppti í loftriffli í dag á Smáþjóðaleikunum. Hún var langt frá sínu besta og hafnaði í 10. sæti. Skorið var 89-83-93-88 eða alls 353 stig.
Jórunn Harðardóttir keppti í loftriffli í dag á Smáþjóðaleikunum. Hún var langt frá sínu besta og hafnaði í 10. sæti. Skorið var 89-83-93-88 eða alls 353 stig.
Æfingasvæði félagsins eru LOKUÐ í dag vegna Aðalfundar. Sjá auglýsingu hér á síðunni 20. maí s.l. „Aðalfundur félagsins verður haldinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal á 3.hæð í aðalbyggingu ÍSÍ þriðjudaginn…
Keppni í Loftriffli kvenna á Smáþjóðaleikunum hefst kl.11:45 á eftir. Úrslitin hefjast svo kl. 14:15 að okkar tíma. Jórunn Harðardóttir er keppandi okkar þar.
Guðmundur Helgi Christensen er fimmti fyrir final, á Smáþjóðaleikunum, með 562 stig (94-93-93-91-94-97) Næstu menn fyrir ofan eru á 563, 564, 580 og 583 stigum. Það verður því spennandi finallinn…
Skráningu á Landsmótið í Skeet um næstu helgi lýkur á þriðjudagskvöldið. Skráningu skal senda á sr@sr.is
Hægt er að fylgjast með skorinu á heimasíðu leikanna : http://liegames2011.li/Termine/tabid/1597/language/en-US/Default.aspx Keppt er í loftriffli á þriðjudaginn, í loftskammbyssu á miðvikudaginn og í enskum riffli á föstudaginn.
Fimmtudaginn 2. júní, uppstigningardag, verður félagið 144 ára. Í tilefni dagsins verður boðið uppá kaffi og rjómavöfflur á Álfsnesi. Opið verður frá kl 12 – 17 á afmælisdaginn.
Nú líður senn að fyrsta hreindýranámskeiðinu í sumar. Reiknum með að þau hefjist uppúr miðjum Júní en það verður auglýst þegar nær dregur. Námskeiðin hafa verið afar vinsæl meðal tilvonandi…
Á mánudaginn hefjast Smáþjóðaleikarnir í Liechtenstein. Við eigum þar 3 keppendur, þau Ásgeir Sigurgeirsson, Jórunni Harðardóttur og Guðmund Helga Christensen. Við flytjum af þeim fréttir jafnóðum og þær berast.
Grafarvogsdagurinn er á morgun laugardag. Opið verður hjá okkur í Egilshöllinni kl.10-13 þar sem gestir geta fengið að prófa að skjóta úr loftrifflum. Aldurstakmark er 15 ára en þeir sem…