Íslandsmetin féllu um helgina Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 10. desember 2017 18:51

201750mlmot9des123ka201750mlmot9des123kv201750mlmot9desbara201750mlmot9deslidkasr201750mlmot9deslidsia201750mlmot9dessib201750mlmot9desurslit9.des: Á landsmóti STÍ í 60sk liggjandi riffli sem fram fór í Egilshöllinni í dag setti Bára Einarsdóttir úr Skotíþróttafélagi Kópavogs nýtt Íslandsmet, 617,3 stig. Í öðru sæti varð Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur með 610,0 stig og í þriðja sæti varð Margrét L Alfreðsdóttir úr SFK með 587,5 stig. Í liðakeppninni var ein sveit skráð til leiks, sveit Skotíþróttafélags Kópavogs og setti hún nýtt Íslandsmet 1.781,0 stig en hún var skipuð þeim Báru og Margréti ásamt Guðrúnu Hafberg....


Í karlaflokki sigraði Jón Þ. Sigurðsson úr SFK með 622,3 stig, annar varð Arnfinnur A. Jónsson úr SFK með 611,9 stig og í þriðja sæti hafnaði Guðmundur Helgi Christensen úr SR með 605,1 stig. Í liðakeppninni sigrað A-sveit Skotíþróttafélags Ísafjarðar með 1.794,3 stig skipuð Guðmundi V aldimarssyni, Ívari M. Valssyni og Vali Richter. Í öðru sæti varð sveit Skotfélags Reykjavíkur með 1.773,1 stig með innanborðs þá Guðmund Helga, Þorstein Bjarnarson og Þóri Kristinsson. Í þriðja sæti hafnaði svo B-sveit SÍ með 1.688,3 stig en hún var skipuð Leifi Bremnes, Erlingi Þ. Kristjánssyni og Ingvari Bremnes.

2017tristada10des2017tristada10des123ka2017tristada10des123kv2017tristadalidsr10.des: Lið Skotfélags Reykjavíkur (SR) með þá Guðmund Helga Christensen, Þóri Kristinsson og Þorstein Bjarnarson setti nýtt Íslandsmet í þrístöðu í dag þar sem þeir skutu 3048 stig og bættu gamla metið um heil 41 stig. Karlalið Skotíþróttafélags Ísafjarðar lenti í öðru sæti með 2707 stig.ÂÂ Í einstaklingskeppni karla sigraði Guðmundur Helgi Christensen á 1107 stigum, í öðru sæti var Þórir Kristinsson á 989 stigum og Robert V. Ryan landaði bronsi með 962 stig.  Þeir keppa allir fyrir Skotfélag Reykjavíkur. Jórunn Harðardóttir (SR) vann kvennakeppnina á 532 stigum, Bára Einarsdóttir hreppti silfur með 492 stig og Guðrún Hafberg varð í þriðja sæti með 480 stig, en þær síðastnefndu keppa fyrir Skotíþróttafélag Kópavogs.

Í þrístöðu er keppt í þremum stöðum, fyrst í hnjástöðu, þá liggjandi og loks standandi. Karlar skjóta 40 skotum í hverri stöðu en kvenmenn 20 skotum. Óvíst er hvað sá aðskilnaður mun vara lengi þar sem nú hefur verið samþykkt innan Alþjóðaskotsambandsins (ISSF) að ekki verði gerður munur á karla- og kvennakeppnum hvað varðar skotafjölda í framtíðinni. Evrópska skotsambandið (ESC) hefur nú þegar tilkynnt að í næsta Evrópumóti í loftgreinum skjóti allir 60 skotum óháð kyni svo að líklegt er að sömu reglur munu fljótlega taka gildi á Íslandi.

AddThis Social Bookmark Button