Keppni lokið á EM í Ungverjalandi Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 24. febrúar 2018 13:21

g16_8392 1 of 1gkg_5843 1 of 12018emasgeir2018emsalurEM í loftbyssugreinunum í Ungverjalandi er lokið. Ásgeir Sigurgeirsson og Jórunn Harðardóttir lentu í 37.sæti af 50 liðum í parakeppninni á Evrópumeistaramótinu í gær.

Jórunn Harðardóttir hafnaði í 54.sæti af 72 keppendum í loftskammbyssu kvenna. Skorið var 554 stig (89-91-94-93-90-97 og 15x-tíur). Íslandsmet hennar sem hún setti á RIG-leikunum í Reykjavík í byrjun mánaðarins er 557 stig.

Ásgeir Sigurgeirsson hafnaði í 30.sæti af 80 keppendum í loftskammbyssu karla. Skorið var 572 stig (96-93-94-97-95-97 og 15 x-tíur) sem er nokkuð frá hans besta en Íslandsmet hans er 589 stig sem hann sett á Christensenmótinu fyrir fimm árum.

AddThis Social Bookmark Button