Skotvopnanámskeið lögreglunnar Skoða sem PDF skjal
Föstudagur, 29. maí 2009 08:17
Á morgun laugardag verður haldið skotvopnanámskeið lögreglunnar og UST í Álfsnesi. Truflun verður á venjulegri starfsemi okkar en samt verður opið bæði í haglabyssuna sem og á riffilsvæðið. Athugið þó að námskeiðið nýtur forgangs á svæðinu meðan það stendur yfir og verða menn að sýna biðlund. Þarna eru jú okkar framtíðar félagar að stíga sín fyrstu spor í skotfiminni. Félagsmenn hafa tekið þessum námskeiðum mjög vel og unað sáttir við sitt meðan það stendur yfir.
AddThis Social Bookmark Button