Haglabyssa

Haglabyssa

Compak Sport

Oftast eru notaðar tvíhleyptar yfir undir haglabyssur en einnig er leyfilegt að nota hálfsjálfvirkar haglabyssur en þá skal magasínið þrengt þannig að það taki ekki nema 1 skot.

Annað þarf ekki til að byrja en dæmi um annan búnað sem hjálpar virkililega má nefna sérhönnuð skotgleraugu og skotvesti.

Skotið er á leirdúfur sem kastað er með a.m.k. 6 sjálfvirkum kastvélum á breytilegu færi. Skotið er alls 100 eða 200 skotum eftir stærð móta.

Keppt er í þessari grein á Heimsmeistaramótum og Evrópumótum. Á Íslandi er keppt í opnum innanfélagsmótum, Lands- og Íslandsmeistaramótum. 

Skeet

Oftast eru notaðar tvíhleyptar yfir undir haglabyssur en einnig er leyfilegt að nota hálfsjálfvirkar haglabyssur en þá skal magasínið þrengt þannig að það taki ekki nema 1 skot.

Annað þarf ekki til að byrja en dæmi um annan búnað sem hjálpar virkililega má nefna sérhönnuð skotgleraugu og skotvesti.

Skotið er á leirdúfur sem kastað er með sjálfvirkum kastvélum úr tveimur skothúsum, marki og turni á mismunandi færi. Skotið er alls 25 skotum frá 8 pöllum sem liggja í hálfmána milli skothúsanna.

Keppt er í þessari grein á Ólympíuleikum, Heimsmeistaramótum, Evrópumótum og Norðurlandamótum. Á Íslandi er keppt í opnum innanfélagsmótum, Lands- og Íslandsmeistaramótum. 

Mótaskrá hvers árs fyrir haglabyssugreinar má finna á vef Skotíþróttasambands Íslands.