Riffill
Loftriffill
Skotið er á 10 metra færi. Loftriffillinn er einskota og skotið er 4.5 mm blýbikar sem þó er aðeins þyngri en sá sem notaður er í loftskammbyssu.
Í byrjun þarf ekki annan búnað en byssuna en þegar fram í sækir er ýmislegt sem getur hjálpað frekar svo sem sérstakur jakki og buxur og uppháir skotskór.
Keppt er í loftsgreinunum á Ólympíuleikum, Heimsmeistaramótum, Evrópumótum, Norðurlandamótum og Smáþjóðaleikum. Á Íslandi er keppt í þeim á ýmsum mótum svo sem opnum innanlandsmótum, opnum alþjóðlegum mótum, Lands- og Íslandsmótum.
50 m. Prone
50 m Prone, einnig oft talað um 50 m liggjandi – eða Enskan riffill er vinstæl riffilgrein. Erlendis er nær eingöngu keppt utanhúss en á Íslandi nær eingöngu innanhúss.
Skotið er á 50 metra færi úr liggjandi stöðu. Riffillinn er einskota og einungis skotið 22LR. Skotið er með opnum sigtum, þ.e. án stækkunar og ekki er notast við neinn annan stuðning en líkamann.
Sérstakur búnaður er ekki stranglega nauðsynlegur en sérstakur skotjakki, skothanski og ól til að halda við og stífa höndina sem heldur uppi rifflinum hjálpa mikið.
Þessi grein var tekin af dagskrá fyrir Ólympíuleikana 2020 og í framhaldinu af heimsbikarmótum. Enn er þó keppt í 50 prone á Heimsmeistamótum og greinin er vinsæl meðal klúbba og keppt í henni á minni mótum. Þessi grein er auk þess ein þriggja staða sem keppt er í í Þrístöðu, sbr. hér að neðan. Á Íslandi er keppt Prone á ýmsum mótum svo sem opnum innanlandsmótum, Lands- og Íslandsmótum.
300 m. Prone
Um samskonar grein er að ræða og 50 m Prone nema skotið er á skífu á 300 metra færi. Skotið er með opnum sigtum, þ.e. án stækkunar og ekki er notast við neinn annan stuðning en líkamann.
Algengasta riffil caliber er 6BR en einnig notast sumir keppendur við 2BR.
Keppt er í 300 m. Prone á Heimsmeistaramótum, Heimsbikarmótum og Evrópumótum. Á Íslandi er keppt í Lands- og Íslandsmótum.
Jón Þór Sigurðsson úr Skotíþróttafélagi Kópavogs hefur náð góðum árangri í þessari grein erlendis, m.a. var hann Evrpópumeistari 2025.
50 m. Þrístaða
Samanstendur af hnéstöðu, prone (liggjandi) og standandi stöðu. Erlendis er nær eingöngu keppt utanhúss en á Íslandi nær eingöngu innanhúss.
Skotið er á 50 metra færi. Riffillinn er einskota og einungis skotið 22LR. Skotið er með opnum sigtum, þ.e. án stækkunar og ekki er notast við neinn annan stuðning en líkamann.
Hægt er að skjóta Þrístöðu án sérstaks búnaðar en eftir nokkur skot er ljóst að sérstakur skotjakki, skotbuxur, skotskór, skothanski og ól til að halda við og stífa höndina sem heldur uppi rifflinum hefur mikið að segja.
Keppt er í 50 m. Þrístöðu á Ólympíuleikum, Heimsmeistaramótum, Heimsbikarmótum og Evrópumótum. Á Íslandi er keppt Þrístöðu á ýmsum mótum svo sem opnum innanlandsmótum, Lands- og Íslandsmótum.
300 m. Þrístaða
Um samskonar grein er að ræða og 50 m Þrístöðu nema skotið er á skífu á 300 metra færi. Skotið er með opnum sigtum, þ.e. án stækkunar og ekki er notast við neinn annan stuðning en líkamann.
Algengasta riffil caliber er 6BR en einnig notast sumir keppendur við 2BR.
Keppt er í 300 m. Prone á Heimsmeistaramótum, Heimsbikarmótum og Evrópumótum. Hingað til hefur ekki verið keppt í 300 m. Þrístöðu á Íslandi.
BR50 cal.22
Benchrest rimfire eða BR50 er fyrir .22LR riffla eða loftriffla.
Skotið er af borði og með stuðningi (rest-i) að framan og aftan. Riffillinn situr í stuðningnum en má ekki vera fastur við hann. Stuðningurinn að framan má vera stillanlegur og oftast úr járni með sandpúða. Aftur stuðningurinn má vera úr sandfylltum pokum, einum eða fleirri, en ekki vera stillanlegt.
Mótaskrá hvers árs fyrir riffilgreinar má finna á vef Skotíþróttasambands Íslands.
