Miðvikudagur, 10. mars 2021 15:47 |
Þessar reglur eru teknar saman vegna áhorfenda á m.a. skotmótum. Þetta eru reglur sem öll félög verða að fylgja.
- Allir gestir skulu vera skráðir, a.m.k. nafn, kennitala, símanúmer og sæti. Geyma þarf upplýsingar um áhorfendur í tvær vikur eftir viðburð vegna rakningar.Â
- Allir gestir skulu vera sitjandi í númeruðum sætum og ekki andspænis hvor öðrum. Númera skal sæti svo 1m er að lágmarki í næsta áhorfanda á alla kanta. Áhorfendur skulu sitja í því sæti sem þeim er úthlutað, ekki er leyfilegt að skipta á sætum.
-----------------------------------------------------------------------------------------------
- Heimilt er að taka á móti allt að 200 sitjandi áhorfendum í númeruð sæti með 1 metra nálægðarmörkum.
- Áhorfendur skulu sitja í því sæti sem þeim er úthlutað á meðan á viðburði stendur.
- Ath! Mögulega taka áhorfendasvæði/stúkur ekki 200 manns í sæti, nauðsynlegt að mæla út.
- Ef fleiri en eitt sótthólf þá þarf hvert hólf að vera með sérinngang og sér salerni.
- Áhorfendum er skylt að nota andlitsgrímu.
- Gríman á að hylja nef og munn.
- Þátttakendur á keppnissvæði mega ekki fara yfir á önnur svæði s.s. áhorfendasvæði.
|