Mánudagur, 12. nóvember 2012 14:14 |
Hér má sjá hvaðan keppendur koma og eins hvaða greinar eru vinsælastar á mótum á vegum Skotíþróttasambands Íslands.
|
|
Sunnudagur, 11. nóvember 2012 17:03 |
Ásgeir Sigurgeirsson sigraði báða andstæðinga sína í keppnum helgarinnar, í annari deild þýsku Bundezliegunnar. Lið Ásgeirs Gros und Kleinkaliber Hannover tapaði fyrri keppninni 2-3 en vann þá síðari 3-2. Liðið er nú efst í Norður-deild með vinningshlutfallið 14 - 6 og er í góðri stöðu í baráttunni um sæti í fyrstu deild.
|
Laugardagur, 10. nóvember 2012 12:57 |
Við urðum að loka á Álfsnesi í dag vegna veðurs.
|
Laugardagur, 03. nóvember 2012 14:11 |
Einsog sjá mámeðfylgjandi myndum varð þó nokkuð tjón á okkar svæði í óveðrinu.Öryggisveggirnir voru tilbúnir fyrir steypu og því ljóst að nokkur töf verður á að þeir klárist eftir þetta. Hlerar á tveimur húsum fuku af en ekkert tjón virðist hafa orðið af þeirra völdum. Á riffilvellinum tættust battarnir á 25 og 50 metrunum. Á 300metra battanum hvarf allt tex af en önnur færi sluppu.
|
Föstudagur, 02. nóvember 2012 14:21 |
 Umsögn stjórnar Skotfélags Reykjavíkur um Vopnalagafrumvarp Innanríkisráðherra hefur borist Allsherjarnefnd Alþingis og verður aðgengileg á vef nefndarinnar innan skamms. Eins hefur Skotíþróttasamband íslands sent inn umsögn. Umsögn félagsins er hér að neðan :
Allsherjar-og menntamálanefnd Alþingis
Athugasemdir við 183.mál lagafrumvarp um Vopn,sprengiefni og skotelda.
Reykjavík, 30.október 2012
Stjórn Skotfélags Reykjavíkur fagnar framkomnu lagafrumvarpi og telur það vera til
|
Nánar...
|
Föstudagur, 02. nóvember 2012 09:35 |
Lokað verður á Álfsnesi á morgun, laugardag vegna óveðurs. Við ætlum hinsvegar að nýta okkur ákvæði í starfsleyfinu og hafa opið á sunnudaginn kl. 13-16 !!
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 191 192 193 194 195 196 197 198 199 200 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 192 af 293 |