Bréf til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar Skoða sem PDF skjal
Mánudagur, 08. febrúar 2021 11:11

SKOTREYN sendi inn ágæta greinargerð vegna umsóknar þeirra um starfsleyfi. Athugasemdir þeirra eiga fyllilega við um okkar umsókn og því athyglisvert fyrir okkur að lesa þetta til að öðlast betri skilning á þessu máli. Greinin er birt með leyfi formanns SKOTREYNar.

Grein SKOTREYN

AddThis Social Bookmark Button
 
Lega Sundabrautar liggur nú fyrir Skoða sem PDF skjal
Föstudagur, 05. febrúar 2021 14:42

sr alfsnes vallarsvi feb 2021Nú liggur fyrir skýrsla starfshóps Vegagerðinnar um legu Sundabrautar, en Reykjavíkurborg, Faxaflóahafnir og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu áttu einnig fulltrúa í hópnum. Fyrir okkur er það fagnaðarefni að skotsvæði Skotfélags Reykjavíkur verður ekki fyrir miklum áhrifum af þeirri legu. Reykjavíkurborg ætti því að vera í lófa lagið að halda félaginu áfram á þessum stað til framtíðar og hlúa bara enn betur að því. Skapa þarf sátt um nágrennið og gera skotíþróttaiðkendum kleift að stunda æfingar seinni part dags og um helgar allt árið. Á meðfylgjandi mynd má sjá afstöðu okkar svæðis á nesinu. Samantekt úr skýrslunni er hérna. 

AddThis Social Bookmark Button
 
Um skotsvæði félagsins á Álfsnesi Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 27. janúar 2021 10:29

Samningur Skotfélags Reykjavíkur (SR), elsta íþróttafélags landsins, og Reykjavíkurborgar um aðstöðu á Álfsnesi er nú runninn út. Við höfum óskað eftir framlengingu til næstu ára og að svæðið komist inná framtíðarskipulag Reykjavíkurborgar.

Á Álfsnesi er útiaðstaða félagsins þar sem æfingar og innlendar og alþjóðlegar keppnir eru haldnar, auk þess svæðið hefur verið notað til verklega skotprófa vegna hreindýraprófa Umhverfisstofnunar og skotvopnanámskeiða Ríkislögreglustjóra. Mikill fjöldi félagsmanna auk utanfélagsmanna notar svæðið að staðaldri og eru félagsmenn SR í fremsta flokki afreksíþróttafólks í skotfimi á landinu og hafa keppt á Ólympíuleikum, Heimsmeistara-, Heimsbikar- og Evrópumeistaramótum á síðustu árum.

Reiknað var með að svæði þetta á Álfsnesi yrði varanlegt skotsvæði Reykvíkinga til frambúðar. Leitað hafði verið að svæði í mörg ár þar til Álfsnesið fannst og ákveðið að eyða í það hundruðum milljóna til að gera það sem glæsilegast úr garði. Félagið hefur þó fullan skilning á því að nýta þurfi Álfsnesið að hluta undir Sundabraut, iðnaðarhúsnæði eða hvað annað sem þolir þann vindstyrk sem þar getur orðið. Ef finna þarf félaginu annað svæði innan borgarmarkanna til framtíðar leggjum við á það áherslu að félagið komi að þeirri leit nú þegar og að sú aðstaða sem félaginu stendur til boða verði að fullu uppbyggð áður en kemur að lokun á núverandi svæði þess á Álfsnesi.

Nú liggur fyrir ný skýrsla Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar um skotsvæðið þar sem settar eru fram mælingar á blý- og hávaða.

Blýmengun er þar talin töluverð þrátt fyrir að síðustu ár hafi nær eingöngu verið notuð stálhögl í skotum fyrir haglabyssur. Notkun á haglabyssuskotum sem innihalda blý verður alfarið bönnuð eftir áramótin. Samkvæmt upplýsingum innflytjenda þá hafa nánast eingöngu verið flutt inn haglaskot sem innihalda stál í stað blýs undanfarin 8-9 ár hið minnsta. Fyrstu árin eftir opnun svæðisins var framboð á stálhöglum afar lítið en það breyttist fljótlega og verðið á þeim var þá töuvert lægra heldur en á blýskotum. Í þeirri haglabyssugrein sem við stundum hvað mest, Ólympískt Skeet, eru stálhögl fyllilega hæf þar sem færin eru mjög stutt. Blýskot draga lengra og hafa betri broteiginleika en eftir því sækjast keppendur í öðrum haglagreinum frekar. Á stórmótum erlendis er notkun á blýskotum afar mikil og því gætu okkar afreksíþróttafólk þurft að æfa sig erlendis með blýskotum fyrir stórmótin.

Niðurstöður hljóðmengunarmælinga norðanmegin við Kollafjörðinn voru þannig að hæsta jafngildishljóðstig mældist 53dB við Skriðu/Stekk en lægsta við Móaberg, 44dB. Svæðið norðanmegin við Kollafjörðinn er samkvæmt Aðalskipulagi Reykjavíkurborgar skilgreint sem iðnaðarsvæði (landbúnaðarsvæði) þar sem leyfilegt hámark hljóðmengunar er 70dB samkvæmt reglugerð nr.724/2008. Mæld hljóðmengun er því vel innan við leyfilegt hámark miðað við skilgreiningu landnýtingar fyrir svæðið.

Í skýrslu Heilbrigðiseftirlitsins er hins vegar ekki farið eftir skilgreiningu Aðalskipulags svæðisins og í staðinn er svæðið norðan Kollafjarðar skilgreint íbúðarhúsnæði á íbúðarsvæði! þar sem hávaðamörkin eru við 45dB! Reyndar eru hávaðamörk fyrir íbúðarhúsnæði á verslunar-, þjónustu- og miðsvæðum líka gefin upp í reglugerðinni, eða 55dB, og eru mælingar Heilbrigðiseftirlitsins innan við það hámark.

Tillögur Heilbrigðiseftirlitsins um opnunartíma starfsemi félagsins á Álfsnesi í drögum að nýju starfsleyfi eru unnar út frá þessum hljóðmælingum og viðmiðum fyrir íbúðarhúsnæði á íbúðarsvæði í staðinn fyrir iðnaðarsvæði. Gera þær ráð fyrir mun styttri opnunartíma en hefur hingað til hefur verið inni í starfsleyfi svæðisins en samkvæmt tillögunum er leyfð opnun á svæðinu kl. 10-19 mánudaga til fimmtudaga og um helgar er aðeins leyfð opnun á laugardögum frá kl. 10-16.

Í ljósi þess að við rekum íþróttafélag sem stundar m.a. Ólympískar skotgreinar, er okkur bráðnauðsynlegt að halda svæðinu opnu eins mikið og kostur er til að iðkendur okkar geti haldið áfram að stunda íþróttina og halda áfram þeim góða árangri sem þeir hafa sýnt innanlands og utan. Iðkendur eru alla jafna í vinnu til kl. 17-18 alla daga en eiga svo margir hverjir frí um helgar, þannig að nauðsynlegt er að lengja opnunartíma virka daga sem og um helgar til að þeir geti nýtt sér aðstöðuna. Í fyrra starfsleyfinu var heimil opnun til kl. 22 virka daga yfir sumartímann og til kl. 18 á laugardögum. Við höfðum þó ávallt aðeins opið til kl. 21 á virkum dögum og til kl.16 á laugardögum.

Einsog allir sem nálægt Álfsnesi koma er mjög algengt að loka þurfi svæðinu vegna hvassviðris. Vindhviður yfir 20 m/sek eru þar mjög algengar og höfum við t.d. haft þá reglu að ef vindstyrkur er yfir 15 m/sek þá lokum við. Við höfum haft heimild til að færa opnun yfir á sunnudag ef loka þarf á laugardegi.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar hefur nú birt sína tillögu að starfsleyfi félagsins á vef sínum og er slóðin þessi.

Við trúum því og treystum að Borgarstjórn sjái til þess að við Reykvíkingar sem stundum skotíþróttir höfum til þess aðstöðu til framtíðar. Á Álfsnesinu væri hægt að búa þannig um hnútana að friður skapist um svæðið t.d. mætti hækka allar manir verulega og byggja jafnvel yfir riffilvöllin svo öllum hávaðamörkum sé fylgt. Allt sem þarf er góður vilji og skilningur á mikilvægi þess að friður ríki um svæðið á 144 ára afmæli félagsins sem er þann 2.júní n.k.

AddThis Social Bookmark Button
 
LOKAÐ í dag á Álfsnesi Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 23. janúar 2021 09:52

The Wind Blowing Face Emoji on iEmoji.comLokað er á Álfsnesi í dag. Lognið er að ferðast aðeins of hratt.

AddThis Social Bookmark Button
 
BLÝBANN Á HAGLASVÆÐI Skoða sem PDF skjal
Föstudagur, 15. janúar 2021 09:43

Stjórn félagsins hefur ákveðið að algjört blýbann verði á haglavöllunum á Álfsnesi, þar til annað verður ákveðið. Undanfarin ár hafa haglaskot með stálhöglum verið langmest notuð. Meginástæðan er að þau eru ódýrari heldur en blýskot. Fyrstu árin voru blýskot notuð en svo breyttist það með tímanum og síðustu 8-9 árin hafa stálskotin verið ráðandi enda sýna niðurstöður rannsókna Heilbrigðiseftirlitsins að sú sé raunin á okkar svæði. Afreksmenn okkar hafa verið að nota eitthvað af blýskotum, sérstaklega fyrir mót, því blýskot eru notuð á nánast öllum stórmótum erlendis en stálið notað meira til æfinga. Í starfsleyfi okkar er leyfilegt að nota blýskot en mælst er til þess að notast sé við stálskot eða önnur vistvænni skot en blý. Við vonumst til þess að við getum með þessum hætti komið til móts við gagnrýni á notkun blýskota. Spurning er aftur á móti hvort mengun á okkar svæði sé mikil samanborin við nágranna okkar í Sorpu en stærsta urðunarsvæði landsins er í nágrenninu.

AddThis Social Bookmark Button
 
Egilshöll opnar á fimmtudaginn Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 13. janúar 2021 16:24

Við opnum Egilshöll á morgun, fimmtudaginn 14.janúar kl.19-21. Það verða töluverðar takmarkanir, grímuskylda, aðeins önnur hver braut verður notuð svo færri komast að en áður. Gestir verða að huga að einstaklingsbundnum sóttvörnum, sótthreinsa þarf alla snertifleti eftir notkun, 2ja metra reglan í fullu gildi osfrv. Nánari reglur ÍSÍ og STÍ eru aðgengilegar hérna. 

AddThis Social Bookmark Button
 
<< Fyrsta < Fyrri 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 Næsta > Síðasta >>

Síða 40 af 291

Á Döfinni

Auglýsing
Álfsnes - leiðarvísir
Auglýsing
Álfsnes - Skotsvæði
Auglýsing
Egilshöll - 50m salur
Auglýsing
Egilshöll - Loftbrautir
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing