Þriðjudagur, 15. desember 2009 10:10 |
Fyrsta landsmót tímabilsins í enskum riffli var haldið í Kópavogi á sunnudaginn. Okkar maður, Guðmundur Helgi Christensen sigraði með 577 stig, Arnfinnur Jónsson úr SFK varð annar með 574 stig og í þriðja sæti varð Eyjólfur Óskarsson úr SR með 568 stig.
|
|
Miðvikudagur, 09. desember 2009 22:38 |
Rifflanefnd Skotfélags Reykjavíkur heldur skotmót Fimmtudaginn 31.desember á svæði félagsins á Álfsnesi. Vegna takmarkaðs birtutíma þurfa menn að vera tilbúnir að hefja keppni kl 11:30. Keppni ætti að ljúka upp úr kl 14.
|
Nánar...
|
Laugardagur, 05. desember 2009 22:54 |
Meðan félagið hafði aðstöðuna í Leirdal var haldið mót í haglabyssugreininni Skeet á hverju ári. Mótið var kallað ÁRAMÓTIÐ og var haldið á Gamlársdag. Þetta mót var ávallt síðasta íþróttamótið sem haldið var á landinu á hverju ári.
|
Nánar...
|
Mánudagur, 30. nóvember 2009 19:15 |
Félagið er nú komið með síðu á Facebook. Þið getið skoðað síðuna með því að smella á slóðina hér til hægri.
|
Laugardagur, 14. nóvember 2009 18:33 |
Ásgeir Sigurgeirsson úr Skotfélagi Reykjavíkur bætti í dag Íslandsmet sitt í loftskammbyssu um heil 5 stig. Hann skaut 586 stig í aðalkeppninni og bætti svo um betur og skaut 99,4 í úrslitunum (final) og bætti því heildarmetið líka eða alls 685,4 stig. Með þessu er hann að stimpla sig inn í hóp bestu skotmanna Evrópu. Þess má geta að danska metið með final er 679 stig en það sænska er aðeins hærra eða 686,7 stig en það met á tvöfaldur Ólympíumeistari þeirra Svía, Ragnar Skanaker.
|
Nánar...
|
Miðvikudagur, 11. nóvember 2009 11:22 |
Á landsmótið í loftbyssugreinunum á laugardaginn eru skráðir keppendur 24 talsins. Keppt verður í 2 riðlum sem hefjast kl.10 og 12. Úrslitin hefjast svo kl.14:30. Keppnisæfing er á föstudaginn kl.19-21. Riðlaskiptingin er komin hérna.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 251 252 253 254 255 256 257 258 259 260 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 260 af 286 |