Evrópumeistaramótið í Slóveníu Skoða sem PDF skjal
Fimmtudagur, 09. mars 2017 21:07

asgsig loft m steyrjorunnhardarap40.jpgEvrópumeistaramótið í loftbyssugreinunum stendur nú yfir í Maribor í Slóveníu. Við eigum þar tvo keppendur, Ásgeir Sigurgeirsson, sem keppir í loftskammbyssu föstudaginn 10.mars kl.08:00 og Jórunni Harðardóttur sem keppir á laugardaginn 11.mars kl. 08:30.

AddThis Social Bookmark Button
 
Íslandsmet á RIG í Egilshöll í dag Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 04. febrúar 2017 13:33

2017rigurslitskotfimi2017rigallir2017rigriffka132017rigriffkv1232017rigriffopen1232017rigasgvikÁ Reykjavíkurleikunum í Egilshöllinni í dag setti Viktoría Erla Þ.Bjarnarson nýtt Íslandsmet í Unglingaflokki í Loftriffli, 331,2 stig. Annars endaði keppnin í loftriffli kvenna þannig að Jórunn Harðardóttir úr SR sigraði með 399,2 stig, Viktoría varð önnur og Þórey Inga Helgadóttir varð þriðja með 295,9 stig. Í karlaflokki sigraði Guðmundur Helgi Christensen úr SR með 593,0 stig, Theódór Kjartansson úr SK varð annar með 564,8 stig og í þriðja sæti varð Róbert Vincent Ryan úr SR með 550,5 stig. Í loftskammbyssu karla sigraði Ásgeir Sigurgeirsson úr SR með 576 stig, annar varð Thomas Viderö úr SFK 559 stig og í þriðja sæti Jórunn Harðardóttir úr SR með 552 stig. Við verðlaunaafhendinguna tilkynnti mótsstjórn um val á skotkonu og skotkarli mótsins sem voru þau Ásgeir Sigurgeirsson og Viktoría Erla Þ. Bjarnarson. Þess má geta að Viktoría er aðeins 15 ára gömul. Nokkrar myndir frá mótinu eru hérna.

AddThis Social Bookmark Button
 
Keppendalisti RIG á laugardaginn Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 01. febrúar 2017 20:28

rigwowskotfimi2017airpistol2017rigridlarwow-rigÞá er keppendalistinn fyrir Reykjavíkurleikana á laugardaginn tilbúinn. Keppni hefst kl. 09:00 í Loftriffli og síðan kl.11:00 í Loftskammbyssu. Keppt er í karla og kvennaflokki í loftriffli en í opnum flokki í loftskammbyssu.

AddThis Social Bookmark Button
 
Reykjavíkurleikarnir eru um aðra helgi Skoða sem PDF skjal
Mánudagur, 23. janúar 2017 14:45

wow-rigskotfimi iris gsse2015 rig2016allirReykjavíkurleikarnir verða haldnir næstu tvær helgar í Reykjavík. Í Egilshöllinni verður keppt í Loftskammbyssu og Loftriffli laugardaginn 4.febrúar og hefst keppnin kl.09:00. Skráning er ennþá opin og geta þátttakendur sent skráningu á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. til og með mánudeginum 30.janúar.

AddThis Social Bookmark Button
 
Karl sigraði í Sportbyssunni Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 22. janúar 2017 09:44

2017sport21jan1232017sport21janLandsmót í Sportskammbyssu fór fram í Egilshöllinni í Grafarvogi í dag, laugardag. Karl Kristinsson sigraði með 543 stig, Jón Árni Þórisson varð annar með 519 stig og í þriðja sæti varð Engilbert Runólfsson með 506 stig. Þeir koma allir úr Skotfélagi Reykjavíkur.

AddThis Social Bookmark Button
 
SR-ingar á sigurbraut í dag Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 14. janúar 2017 18:12

2017fb123jan142017fbsralidjan142017fbsfkalidjan142017fri14janLandsmót Skotíþróttasambands Íslands í Frjálsri skammbyssu fór fram í Íþróttahúsinu Digranesi í dag, laugardaginn 14. janúar og varð það Skotíþróttafélag Kópavogs sem hélt mótið.
Ásgeir Sigurgeirsson Skotfélagi Reykjavíkur var í nokkrum sérflokki og sigraði í mótinu með yfirburðum en skor hans var 553 stig sem var 12 stigum frá Íslandsmeti hans sem hann sett í Munchen 18. júní 2011 og jafnaði aftur 11 apríl 2015.
Jórunn Harðardóttir, einnig úr SR, náði öðru sætinu með 501 stigum og Thomas Viderö, Skotíþróttafélagi Kópavogs, hreppti þriðja sætið með 490 stig.
.
Í liðakeppninni sigraði A lið SR með 1509 stigum en sveitina skipuðu þau Ásgeir, Jórunn auk Jóns Árna Þórissonar. A sveit Skotíþróttafélags Kópavogs hreppti annað sætið með 1340 stig. Sveit SFK skipuðu Thomas Viderö, Guðmundur Ævar Guðmundsson og Guðrún Hafberg.
Myndir og texti: JAK

AddThis Social Bookmark Button
 
<< Fyrsta < Fyrri 91 92 93 94 95 96 97 98 99 100 Næsta > Síðasta >>

Síða 94 af 296

Á Döfinni

Auglýsing
Álfsnes - leiðarvísir
Auglýsing
Álfsnes - Skotsvæði
Auglýsing
Egilshöll - 50m salur
Auglýsing
Egilshöll - Loftbrautir
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing