Skotíþróttamenn ársins 2013 eru Jórunn og Ásgeir Skoða sem PDF skjal
Þriðjudagur, 17. desember 2013 09:54

 

jorunnstd2013a asgeir 2013 free  017Skotíþróttasamband Íslands hefur valið eftirtalda sem Skotíþróttamenn ársins 2013 : 

Skotíþróttakarl ársins er:  Ásgeir Sigurgeirsson úr Skotfélagi Reykjavíkur. 

Ásgeir Sigurgeirsson (f.1985) er landsliðsmaður í Loftskammbyssu og Frjálsri skammbyssu. 

Hann er sem stendur 17. sæti á Evrópulistanum og í 30. sæti á Heimslistanum í Loftskammbyssu. Einnig er Ásgeir inná listunum í Frjálsri skammbyssu, í 19. sæti á Evrópulistanum og í 39. sæti á Heimslistanum. 

Hann sigraði á öllum innlendum mótum sem hann tók þátt í á árinu og varð bæði Íslands-og Bikarmeistari í sínum greinum.

Ásgeir komst í úrslit á Evrópumeistaramótinu í Danmörku í janúar og hafnaði þar í 8. sæti af 61 keppanda í Loftskammbyssu. Einnig keppti hann í Frjálsri skammbyssu á Evrópumeistaramótinu í Króatíu og hafnaði þar í 15. sæti. Hann varð í 2. sæti á Smáþjóðaleikunum í Luxemburg.

Einnig hafnaði hann í 14.sæti í Frjálsri skammbyssu og 19.sæti í Loftskammbyssu á Heimsbikarmótinu í Kóreu og í 22.sæti á Heimsbikarmótinu í München í lok maí. 

Skotíþróttakona ársins er: Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur.

Jórunn Harðardóttir (f.1968) er landsliðskona í riffli og skammbyssu. Hún náði silfurverðlaunum ,0sffliggjandi ins komst hlda sem Skotí Loftskammbyssu á Smáþjóðaleikunum í Luxemburg og eins komst hún í úrslit í Loftriffli á sama móti.

Hún varð Íslandsmeistari ,0sffliggjandi ins komst hlda sem Skotí 60skota liggjandi riffli, Íslandsmeistari í Frjálsri skammbyssu og eins í Loftskammbyssu. Einnig varð hún Reykjavíkurmeistari í Loftriffli.

AddThis Social Bookmark Button