BR50 mót þriðjudaginn 13. ágúst.. Skoða sem PDF skjal
Föstudagur, 09. ágúst 2013 16:11

BR50 mót verður haldið ÞRIÐJUDAGINN 13. ágúst nk. á Álfsnesi. Fyrirkomulag er með þeim hætti að skotin eru 25 stk skot á keppnisskífu af 50 metra færi, ásamt ótakmörkuðum fjölda af æfingarskotum á sömu skífu.  Athugið að skotið er með 22. Long Rifle eingöngu á 50 metra færi......... ........BR50 stendur fyrir Benchrest fyrir cal. 22LR á 50metra færi. Þetta atriði hefur farið fram hjá einhverjum sem ekki hafa tekið þátt í félagsstarfi skotfélagana í landinu - þessu er hér með komið á framfæri fyrir þá sem eru að byrja í sportinu !  Beðist er velvirðingar á að þetta hafi ekki komið nægilega vel fram í fyrstu frétt ! Öllum er frjáls þátttaka og er sama keppnisgjald fyrir innanfélagsmenn og þá sem ekki eru í félaginu - verið velkomin þið sem eigið 22 riffla !

Ath - keppt er samkvæmt Enskum Reglunum í BR50.......

Mótið fer fram á tímabilinu kl:16—21. Hefur hver skotmaður 45mín.....  

  ...... til að ljúka keppni, frá því að hann skráir sig í afgreiðslu.

Sækja skal skífur og skila aftur í afgreiðslu.

Staðan mótsins verður uppfærð jafnóðum og skor berast á skjá í afgreiðslu.

Keppt verður í eftirfarandi þyngdarflokkum:

Sporter= 0 - 3,855 kg

Light Varimint= 3,855 - 4,762 kg

Heavy Varimnt= 4,762 - 6,8 kg.

Vigt á staðnum.

Ath. það má taka þátt í öllum þyngdar flokkum kjósi keppendur að gera það.

Leyfilegt er að hafa bæði fram og afturrest ásamt öðrum hefðbundnum BR búnaði.

Keppins gjald er lúguleiga + skotskífa 100 kr.

Meðfylgjandi er mynd af keppnisskífunni.

Nánari upplýsingar hjá starfsmönnum Álfsnesi.

22-nefndin

AddThis Social Bookmark Button