Þriðjudagur, 26. nóvember 2013 14:56 |
Á Landsmóti STÍ sem haldið var í Kópavogi á laugardaginn urðu okkar menn sigursælir. Karl Kristinsson sigraði með 525 stig, Jón Árni Þórisson varð annar með 481 stig og Engilbert Runólfsson þriðji með 463 stig. Kolbeinn Björgvinsson varð svo fjórði með 437 stig. A-liðið sigraði í liðakeppninni með 1,443 stig og B-sveitin með silfrið með 1,079 stig. Skorblaðið er hérna.
|