Miðvikudagur, 31. janúar 2018 15:10 |
![2018wowap60plan](/images/thumbnails/images/greinar/2018wowap60plan-100x75.jpg) Fjölmennasta mót í skotfimi sem haldið hefur verið hérlendis, fer fram í Egilshöllinni í Grafarvogi á laugardaginn kemur, 3.febrúar. Skráningar eru 62 talsins í báðar greinarnar, loftskammbyssu og loftriffil. Mótið hefst fyrr en auglýst hafði verið vegna þessa mikla fjölda eða kl.08:00 þannig að fyrstu keppendur verða að vera komnir á staðinn uppúr 07:15. Tímaplanið er mjög stíft og verður því fylgt vel eftir. Úrslitin hefjast svo kl.15:00+ Keppnisæfing er á föstudaginn kl.16-20
|