Íslandsmetsjöfnun í dag hjá Jórunni Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 15. desember 2019 17:29

2019 tristada 15desÁ landsmóti STÍ sem haldið var í Egilshöllinni í dag, jafnaði Jórunn Harðardóttir úr SR eigið Íslandsmet í rifflgreininni Þríþraut, 1095 stig. Í greininni er skotið 3x40 skotum, liggjandi, krjúpandi og standandi. Önnur í kvennaflokki varð Guðrún Hafberg úr SFK með 957 stig. Í karlaflokki sigraði Guðmundur Helgi Chrsitensen úr SR með 1,109 stig, annar varð Þórir Kristinsson úr SR með 1,020 stig og í þriðja sæti Valur Richter úr SÍ með 1,001 stig. Í liðakeppninni bætti sveit SR eigið Íslandsmet með 3,053 stig og sveit SÍ hreppti silfrið með 2,813 stig. Hægt er að skoða nánar á SIUS-síðunni

AddThis Social Bookmark Button