Í Fréttablaðinu í dag er viðtal við landeiganda við Kollafjörðin, Guðmund Lárusson. Greininni er beint gegn skotsvæði okkar á Álfsnesi og reynt að sverta veru félagsins þar. Hann telur að tugir tonna af blýi liggji í Kollafirðinum og eitri þar fyrir fugli og fiskum. Ekki er nokkur stoð fyrir þessu og engar rannsóknir sýna fram á slíkt. Það er þekkt að andfuglar sæki í sendnar fjörur til að innbyrða sand til að hjálpa til við meltingu. Þarna eru engar sendnar fjörur og þar fyrir utan sækja andfuglar ekki á þetta svæði. Þarna eru bara klettar, urð og grjót. Reyndar er það svo að félagið bannaði notkun á blýhöglum í haglabyssur um áramótin 2020/2021 til að koma til móts við þær raddir að þetta geti mengað útfrá sér. Í greininni telur Guðmundur að það sé rangt að við höfum notast nær eingöngu við haglaskot með STÁLhöglum undanfarin 8 til 9 ár. Það skal bara hafa á hreinu að við ljúgum ekki til um slíka hluti. Staðreyndin er bara sú að verð á haglaskotum ræðst að miklu leiti af haglagerð þeirra og hefur verð á haglaskotum með stálhöglum verið mun lægra undanfarin ár, einsog söluaðilar haglaskota geta staðfest. Eins nefnir Guðmundur að blýhaglaskot séu bönnuð í náttúrunni, sem er alrangt. Ekki vitum við heldur tilgang hans með að ýja að því að lögreglan noti svæðið til æfinga, sem er rangt, og að þar með séum við með vopnaða aðstoð í málinu! Ótrúlegur málflutningur.ÂÂ
Annars er afstaða okkar til notkunar á Álfsnesi undir skotvelli okkar alveg skýr. Við teljum að borgin eigi að nýta svæðið undir okkar starfsemi og aðlaga hana að framtíðarskipulagi borgarinnar. Hækka manir utan um vellina og gera þær ráðstafanir sem nauðsynlegar eru til að draga úr hávaða frá svæðinu einsog kostur er. Ráðstafanir sem borgin gerði þegar við fengum afnot af svæðinu þóttu fullnægjandi en gera má enn betur. Sundabrautin kemur væntanlega innan einhverra ára yfir Álfsnesið og jafnvel einhver iðnaðarstarfsemi sem getur þolað starfsemi einsog okkar í nágrenninu.ÂÂ