Tilkynning frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur Skoða sem PDF skjal
Föstudagur, 18. júlí 2025 13:43

Tilkynning frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur vegna gosmóðu frá eldgosinu við Sundhnúksgígaröð 18. júlí 2025

Í morgun hefur mistur legið yfir sundunum og hækkuð gildi fínasta svifryksins mælst á mælistöðvum í Hvalfirði. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er um gosmóða að ræða sem hefur ferðast yfir landið og er nú að ná höfuðborginni.  Gosmóða inniheldur mengun sem hefur náð að umbreytast m.a. í SO4 (súlfat) og brennisteinssýru og greinist hún því ekki með hefðbundnum mælingum á  brennisteinsdíoxíði (SO2) en mælingar á fínna svifryki gefa vísbendingar um að þessi mengun sé til staðar. Gildi fínasta svifryksins eru farin að hækka á mælistöðvum í Kópavogi og má gera ráð fyrir að gosmóðan sé á leið yfir borgina.

Gosmóða eða blámóða (Volcanic smog) er loftmengun sem verður til þegar SO2, önnur gös og agnir hvarfast við súrefni og raka með tilstuðlan sólarljóssins.  Hún hefur einkennandi blágráan lit sem myndast er sólarljósið brotnar á ögnum/úða.

Gosmóða getur orsakað slen, höfuðverk, ertingu í augum og hálsi auk flensueinkenna. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu.  Þeir sem eru síður viðkvæmir geta einnig fundið fyrir einkennum. Ekki er mælt með því að láta ung börn sofa úti í vagni við þessar aðstæður.

Almennar ráðleggingar varðandi gasmengun eru eftirfarandi:

  • Lungna og hjartasjúklingar hafi sín lyf tiltæk
  • Andið sem mest með nefi og forðast líkamlega áreynslu utandyra í mikill mengun því það dregur úr þeim styrk sem kemst niður í lungu.
  • Dvöl innanhúss með lokaða glugga og slökkt á loftræstingu veitir verulega vörn fyrir menguninni.
  • Athugið að rykgrímur veita enga vörn gegn gasmengun
  • Ráðstafanir til varnar SO2 og annarri gosmengun mengun innandyra
  1. oLokaðu gluggum og minnkaðu umgengni um útidyr.
  2. oHækkaðu hitastigið í húsinu.
  3. oLoftaðu út um leið og loftgæði batna utandyra.

Auk ofangreindra upplýsinga má finna ráðleggingar vegna heilsufarslegra áhrifa að völdum loftmengunar á síðu landlæknis:  https://www.landlaeknir.is/eldgos/. Mælingar á loftgæðum eru aðgengilegar á vef Umhverfisstofnunar, www.loftgaedi.is, nánari leiðbeiningar um viðbrögð við styrk SO2 má fá með því að smella á tengil í vinstra horni síðunnar. Spár um gasmengun má sjá á vef Veðurstofunnar, https://www.vedur.is/eldfjoll/eldgos-a-reykjanesi/gasmengun/.

Frekari uppl.  Svava S. Steinarsdóttir heilbrigðisfulltrúi, s. 6939673, t.p. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

AddThis Social Bookmark Button