BR50 cal.22 mót 13.-18.janúar 2014 - í Egilshöll Skoða sem PDF skjal
Föstudagur, 03. janúar 2014 15:49

Í Egilshöllinni, vikuna 13.-18.jan 2014 verður í gangi Janúarmót SR í BR50 með cal.22lr (ekki hi-vel skot) og verður skotið á hefðbundnum opnunartíma. Fyrirkomulagið er þannig að menn fá merkta þeim BR50 skotskífu hjá æfingastjóra og skjóta á 30 mínútum 25 skotum.

Færa skal inn á skífuna nafn, riffiltegund,sjónauka og skot. Æfingastjóri tekur við skífu og geymir á skrifstofunni. Mótsstjórn telur svo út stigin að loknu móti. Keppt verður í 4 flokkum og getur hver keppandi tekið þátt í þeim öllum ef hann á riffil sem uppfyllir skilyrðin.

1. Sporter flokkur, 0-3,855 kg og mesta stækkun á sjónauka má vera 6,5x. Leyfilegt er að nota stærri sjónauka en þá skal hann teipaður á 6,5x stækkunina.

2. Light Varmint flokkur, 3,856-4,762 kg.

3. Heavy Varmint flokkur, 4,763-6,800 kg.

4. Opinn flokkur, 6,801 kg eða þyngri.

Menn geta nú mætt með nánast hvaða cal.22lr riffil sem er og tekið þátt við bestu aðstæður.

Mótagjald í hverjum flokki er kr. 100 að viðbættu hefðbundnu æfingagjaldi skv.gjaldskrá.

AddThis Social Bookmark Button