Hlað-Norma 6.5X55 riffilmót og æfingar í sumar Skoða sem PDF skjal
Mánudagur, 11. maí 2009 11:00

Hjálmar í Hlað stefnir á að halda riffilmót og æfingar í sumar. Eftirfarandi er á Hlaðvefnum í dag:

Hugmyndir er að halda riffilskotkeppni á velli SR seinnipart júli mánaðar.
Þar sem Norma er tilbúið að styrkja mótið verður það kallað Hlað-Norma riffilmót 

og einungis leyft að nota Norma verksmiðjuskot og 6,5x55.
Skotin verða seld á sérstöku verði og reynt verður að hafa verðið á pari við endurhlaðin skot.
Skiplagðar æfingar vonandi að minsta kosti tvisvar í viku verða fram að móti og svo verður keppt á 100 og 300 metrum, 10 skot fríhendis á 300 m og 10 skot af borði í resti eða á tvífót á 300 m.
Fengin verður ein keppnisskytta frá Skandinavíu sem keppir sem gestur, hann kemst ekki í verðlaunasæti.
Afar vegleg verðlaun verða fyrir þrjú efstu sætin.
Gaman væri að heyra hvað mönnum finnst en þetta með Norma skotin & 6,5x55 er njörvað niður.
Bendi einnig á að þetta er bara eitt af vonandi mörgum riffilmótum í sumar.
Veiðikveðja Hjalli

AddThis Social Bookmark Button