Sunnudagur, 23. september 2012 18:58 |
Valdimar Long úr Skotfélagi Reykjavíkur varð í dag Íslandsmeistari í Bench Rest riffli á 100+200 metra færi í grúppum. Annar varð Hjalti Stefánsson úr Skotfélagi Austurlands og þriðji Hjörleifur Hilmarsson úr Skotfélagi Kópavogs. Nánari úrslit koma frá STÍ eftir helgi. Meðfylgjandi myndir eru frá Agli Þ.Ragnarssyni.
Viðbót: Úrslit eru komin inná úrslitasíðu STÍ og eins nokkrar myndir hérna.
|