Fimmtudagur, 13. mars 2014 10:32 |
Tvö mót verða í Loftskammbyssu og Loftriffli, fimmtudagana 20.mars og 10.apríl. Opið er fyrir félagsmenn annarra félaga. Keppt verður í sameiginlegum flokkum karla og kvenna, 40 skot. Mæting kl.18:30 og má þá hefja undirbúning, en keppni hefst kl.19:00. Skráningargjald verður bakkelsi með kaffinu :)ÂÂ Skráningu þarf að senda á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
á þriðjudeginum fyrir mótin.
|
|
Fimmtudagur, 13. mars 2014 09:31 |
Á landsmóti STÍ í 60 skotum liggjandi riffli sem haldið var í Kópavogi á laugardaginn sigraði okkar maður, Guðmundur Helgi Christensen,ÂÂ í karlaflokki með 612,2 stig. Annar varð Jón Þór Sigurðsson úr SFK með 611,7 stig og Stefán Eggert Jónsson úr SFK þriðji með 607,2 stig. Í kvennaflokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR með 607,9 stig en önnur varð Bára Einarsdóttir SFK með 599,4 stig. Nánar á www.sti.is
|
Miðvikudagur, 05. mars 2014 07:10 |
Ásgeir Sigurgeirsson endaði í 12.sæti á Evrópumeistaramótinu í loftskammbyssu sem haldið í Moskvu þessa dagana. Hann endaði á 578 stigum og vantaði aðeins 1 stig til að komast í átta manna úrslit. Úrslitin eru hérna.
|
Þriðjudagur, 25. febrúar 2014 15:54 |
Minnum á opnun á þriðjudögum á Álfsnesi. Fylgis með á opnunartímar - nú styttist í vorið og breytta opnunartíma !
|
Miðvikudagur, 19. febrúar 2014 22:52 |
Ásgeir Sigurgeirsson sigraði á Landsmóti STÍ í Frjálsri skammbyssu, sem haldið var í Egilshöllinni í kvöld. í öðru sæti varð Thomas Viderö úr SFK og í 3ja sæti Jórunn Harðardóttir úr SR. Í liðakeppninni sigraði A-sveit Skotfélags Reykjavíkur (Ásgeir, Jórunn harðardóttir og Guðmundur Kr.Gíslason) og í öðru sæti A-sveit Skotfélags Kópavogs (Thomas, Stefán Sigurðsson og Bára Einarsdóttir )
|
Miðvikudagur, 19. febrúar 2014 08:01 |
Lokað er í Egilshöllinni í kvöld vegna Landsmóts STÍ í Frjálsri skammbyssu. Riðlaskiptingin er hérna.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 141 142 143 144 145 146 147 148 149 150 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 150 af 293 |