|
Mánudagur, 15. apríl 2013 09:28 |
|
Minnum á að skráningu á Íslandsmótið í Frjálsri skammbyssu, sem haldið verður í Digranesi laugardaginn 20.apríl, lýkur á morgun. Keppendur SR skrá sig á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
|
|
Laugardagur, 13. apríl 2013 15:51 |
|
Tveir Íslandsmeistaratitlar hjá félagsmönnum í dag ! Á Íslandsmótinu í 60sk liggjandi riffli (enskum riffli) sigruðu hjónin Guðmundur Helgi Christensen og Jórunn Harðardóttir. Við óskum þeim hjartanlega til hamingju með titlana. Skotfélag Kópavogs hélt mótið í aðstöðu sinni í Digranesi og tengdu þeir tölvubúnaðinn inná á internetið. Þannig mátti fylgjast með skorinu í beinni útsendingu. Flott framtak og vel heppnað.
|
|
Föstudagur, 12. apríl 2013 23:09 |
|
Vegna yfirvofandi lögbanns velunnara Jónasar Hallgrímssonar heitins, á minningarmótið um hann, hefur verið ákveðið að taka Minningarmótið um Jónas Hallgrímsson í Benchrest endanlega út af mótaskrá Skotfélags Reykjavíkur.
Í stað minningarmótsins hefur verið ákveðið að setja í gang árlegt mót í sömu grein í Benchrest í HV-flokki. Mótið verður framvegis haldið ár hvert og heitir það hér eftir Vormót SR í Benchrest í HV-flokki. Skotið er á 200metrum og 300metrum, Grúppur ! Veitt verða verðlaun fyrir samanlagðan árangur á báðum færum. Farandbikar- og bikar til eignar fyrir fyrsta sætið og silfur og brons fyrir annað og þriðja sætið. Stjórn félagsins mun minnast Jónsasar hér á síðunni síðar og kynna félagsmönnum hans framlag til skotíþróttarinnar á næstunni.
|
|
Fimmtudagur, 11. apríl 2013 20:34 |
|
Riðlaskipting Íslandsmótanna í Enskum riffli og Staðlaðri skammbyssu um helgina er komin hérna.
|
|
Þriðjudagur, 09. apríl 2013 07:59 |
|
Skráningu á Íslandsmót STÍ í 60sk liggjandi riffli og Staðlaðri skammbyssu lýkur í dag. Við þurfum að senda inn skráningar á STÍ og SFK í kvöld, þannig að enn er möguleiki að taka þátt.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 181 182 183 184 185 186 187 188 189 190 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 184 af 298 |