Fyrsta skammbyssukeppni tímabilsins Skoða sem PDF skjal
Fimmtudagur, 07. október 2010 09:58
Í gærkvöldi fór fram fyrsta skammbyssukeppni vetrarins í Egilshöll. Keppt er í 30 skota sportskammbyssu og eingöngu skotið á langa tímanum. Karl kristinsson sigraði með 274 stig, Jórunn harðardóttir varð önnur með 271 stig og Kolbeinn Björgvinsson þriðji með 260 stig. Þessi keppni verðru haldin fyrsta miðvikudag í mánuði framá vor og gilda 3 bestu mótin við ákvörðun á lokasigurvegara. Hér eru úrslitin.
AddThis Social Bookmark Button
 
Egilshöll opnar í vikunni og Álfsnes opið 3 daga Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 03. október 2010 21:51
Vetrarstarfið í Egilshöllinni hefst á morgun, mánudaginn 4.okt kl.19-21. Opið verður í vikunni kl. 19-21 mánudag til fimmtudags, og svo á laugardaginn kl.11-13. Á Álfsnesi verður opið þirðjudag kl.16-19, fimmtudag kl.17-19 og svo á laugardaginn kl.12-18. Á laugardögum í október og svo fyrstu tvo laugardaga í nóvember hefst námskeið UST og lögreglu kl.11 og truflar því aðeins almenna starfsemi sem hefst alltaf kl.12 þessa daga. Ekki fékkst undanþága hjá Heilbrigðiseftriliti Reykjavíkur til að hefja námskeiðin kl.10 að morgni til að trufla sem minnst starfsemi félagsins um helgar en einsog öllum er kunnugt þótti ekki rétt að veita félaginu leyfi til að hafa æfingar á sunnudögum. Væntanlega er þetta eina frístundastarfið á landinu sem ekki er leyfilegt að stunda á sunnudögum.
AddThis Social Bookmark Button
 
Riffilmót á Álfsnesi sunnudaginn 10. okt á 200 metra færi Skoða sem PDF skjal
Föstudagur, 01. október 2010 18:17

Rifflanefnd Skotfélags Reykjavíkur ætlar að halda Bench Rest skotmót sunnudaginn 10. Október. Mæting er stundvíslega kl.11:00 en fyrst hrinan verður skotin kl:12:00  

Skotið verður svokallað „Varmint for score“ á 200 metrum samkvæmt amerískri fyrirmynd. 

Í stórum dráttum gengur það út á að hitta miðpunkt skotskífu sem er ½ tomma og stig gefin eftir því. Keppnin samanstendur af því að skotnar verða 5 skífur með 5 punktum hver, samtals 25 skot sem ákvarða árangur. Á hverri skífu er punktur sem skjóta má að vild, svokallaður sighter. Á undan fyrstu keppnisskífunni er skotið á eina skífu svokallað „warm- up“ til þess að menn geti stillt sig inn og áttað sig á vindi eða öðrum skilyrðum. Fyrir warm- up hrinuna hafa menn 10 mínútur en 7 mínútur fyrir hinar.  

Allir rifflar eru gjaldgengir og allir sjónaukar leyfilegir. Skotið er af resti og sandpoka eða tvífæti ef menn vilja. Mussle break eru ekki heimil. 

Ef þátttaka gefur tilefni til gæti verið um það að ræða að keppendum yrði skipt í flokka það er að segja Benchrest riffla og aðra riffla þannig að keppendur kepptu á meiri jafnréttisgrundvelli en ella. Einhverjar veitingar verða á boðstólum eftir að móti lýkur.  

Mótsgjald er kr.1000  

Til þess að auðvelda umsjónarmönnum mótsins undirbúning er farið fram á að keppendur skrái sig til keppni fyrir 6. Október. Tilgreina þarf riffil og sjónauka hlaupvídd  gerð skothylkis og kúlu. Skráningu er hægt að senda á e-mail:  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  

 

Allir skotmenn eru velkomnir, mótið er ekki einskorðað við félagsmenn SR. 

Fyrir hönd rifflanefndar SR

Bergur Arthursson

 

AddThis Social Bookmark Button
 
Mótaskrá kúlugreina er komin út Skoða sem PDF skjal
Fimmtudagur, 23. september 2010 17:07
Mótaskrá kúlugreina er komin út og er birt á heimasíðu Skotíþróttasambandsins.
AddThis Social Bookmark Button
 
Ásgeir hlaut í dag styrk frá Ólympíuhreyfingunni Skoða sem PDF skjal
Fimmtudagur, 23. september 2010 16:34
Í dag var gengið frá samningum Ólympíusamhjálparinnar við sérsambönd ÍSÍ og íþróttamanna þeirra vegna undirbúnings fyrir Ólympíuleikana í London 2012. Um er að ræða styrki vegna sjö íþróttamanna frá sex sérsamböndum.  Þeir eru: Ásdís Hjálmsdóttir – Frjálsíþróttasamband ÍslandsÁsgeir Sigurgeirsson – Skotíþróttasamband Íslands
AddThis Social Bookmark Button
Nánar...
 
Therese Lundquist won LGP 2010 Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 18. september 2010 19:37
Hin tvítuga Therese Lundquist frá Svíþjóð sigraði á Alþjóðlega Ladies Grand Prix mótinu í skeet í dag. Í öðru sæti varð Mariut Heinonen frá Finnlandi og í því þriðja Hilegard Beck frá Þýskalandi. Í B-úrslitum sigraði Maria Olafsson frá Svíþjóð, Chiara Costa frá Slóveníu varð í öðru sæti og svo Anita larsson frá Svíþjóð í þriðja sæti. Úrtslitin eru hérna (results) og myndir frá mótinu eru að koma hérna (photos).
AddThis Social Bookmark Button
 
<< Fyrsta < Fyrri 241 242 243 244 245 246 247 248 249 250 Næsta > Síðasta >>

Síða 241 af 287

Á Döfinni

Auglýsing
Álfsnes - leiðarvísir
Auglýsing
Álfsnes - Skotsvæði
Auglýsing
Egilshöll - 50m salur
Auglýsing
Egilshöll - Loftbrautir
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing