Fín mæting á Grafarvogsdeginum í Egilshöll Skoða sem PDF skjal
Þriðjudagur, 07. september 2010 21:00
Hátt í 50 manns kíktu við í aðstöðu SR í Egilshöll á Grafarvogsdeginum síðastliðinn laugardag. Æfingastjórar voru viðstaddir og kynntu þeir aðstöðuna og keppnisgreinar í skotfimi fyrir gestum og gangandi. Þeir gestir sem náð höfðu 18 ára aldri fengu að skjóta af loftrifflum og loftskammbyssum félagsins auk þess sem 15-17 ára gestir fengu einnig að spreyta sig með leyfi foreldra/forráðamanns. Ungir jafn sem aldnir sýndu meistaratakta og sýndu margir áhuga á því að fá frekari tilsögn á komandi æfingatímabili. 
AddThis Social Bookmark Button
 
Bikarmótið í skeet í Þorlákshöfn um helgina Skoða sem PDF skjal
Föstudagur, 03. september 2010 17:57
Bikarmeistaramótið í skeet fer fram á skotvelli SFS í Þorlákshöfn um helgina. Fyrir mótið eru þessir að berjast um Bikarmeistaratitilinn: Sigurþór Jóhannesson,SÍH með 45 stig, Örn Valdimarsson,SR með 44 stig, Hörður Sigurðsson,SÍH með 42 stig og svo eru jafnir með 39 stig Hákon þ.Svavarsson,SFS, Bergþór Pálsson,MAV,Guðmann Jónasson,MAV og Guðlaugur Þ.Bragason,SA.
AddThis Social Bookmark Button
 
Truflun á morgun vegna námskeiða Skoða sem PDF skjal
Föstudagur, 03. september 2010 17:54
Einhver truflun verður á fyrri parti opnunartíma á Álfsnesi á morgun vegna námskeiðahalds.
AddThis Social Bookmark Button
 
Samantekt á skori í skeet 2010 Skoða sem PDF skjal
Fimmtudagur, 02. september 2010 12:01
Komin er samantekt á skori í skeet á þessu tímabili. Taflan er hérna.
AddThis Social Bookmark Button
 
Grafarvogsdagurinn á laugardag Skoða sem PDF skjal
Þriðjudagur, 31. ágúst 2010 17:40
Merki Grafarvogsdagsins Á Grafarvogsdeginum sem haldinn er hátíðlegur á laugardaginn kemur verður félagið með opið í Egilshöllinni kl. 12 til 16. Innanhúskeppnisgreinar í skotfimi verða kynntar og verður hægt að skjóta af loftrifflum og loftskammbyssum félagsins undir leiðsögn reyndra keppenda SR. Aldurstakmark er 18 ár en 15-17 ára með skriflegt leyfi frá foreldrum fá einnig að skjóta.
AddThis Social Bookmark Button
 
Opið í vikunni á Álfsnesi Skoða sem PDF skjal
Mánudagur, 30. ágúst 2010 11:32
Í dag verður opið kl.17-21, á morgun þriðjudag kl.16-21, miðvikudag og fimmtudag kl.17-21. Og svo á laugardaginn kl.10-18. Athguið þó að truflun verður á starfseminni vegna námskeiðahalds á laugardaginn.
AddThis Social Bookmark Button
 
<< Fyrsta < Fyrri 241 242 243 244 245 246 247 248 249 250 Næsta > Síðasta >>

Síða 242 af 286

Á Döfinni

Auglýsing
Álfsnes - leiðarvísir
Auglýsing
Álfsnes - Skotsvæði
Auglýsing
Egilshöll - 50m salur
Auglýsing
Egilshöll - Loftbrautir
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing