Hleðslunámskeið Skotfélags Reykjavíkur Skoða sem PDF skjal
Föstudagur, 05. febrúar 2010 11:18
Hleðslunámskeið verða haldin í félagsheimili okkar á Álfsnesi laugardagana 13. 20. og 27.Febrúar 2010, Kl. 11.00-15.00

Kennari er Jóhann Vilhjálmsson

Námskeiðin gefa fyrir þá sem hafa B- réttindi , hleðsluréttindi E.Námskeiðið er viðurkennt af Ríkislögreglustjóra.Námskeiðin eru kostnaðarlaus fyrir skuldlausa félaga SR og þá sem hafa keypt heil sett til endurhleðslu hjá versluninni Ellingsen.Ennfremur frí fyrir þá sem hafa hugsað sér að að panta hleðslusett hjá Ellingsen,15% afsláttur af hleðsluvörum strax eftir námskeið og 15 % afsláttur af pöntuðum settum. Þeir sem ekki uppfylla ofangreind skilyrði greiða kr. 5,000 í námskeiðsgjald.

Hámarks fjöldi þátttakanda á hverju námskeiði er 10 manns.

 Skráning á námskeiðið:

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.   eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

AddThis Social Bookmark Button
 
Ásgeir sigraði í Hollandi Skoða sem PDF skjal
Fimmtudagur, 04. febrúar 2010 16:51
Mótinu í Hollandi var að ljúka með sigri Ásgeirs. Samtals náði hann 677,9 stigum en Tanyu Kiriakov, fyrrum Ólympíumeistari, þjarmaði að honum í lokin og endaði á 677,3 ! Sauca féll niðrí 3ja sætið með 676,6 stig. Þar með landaði Ásgeir sínum fyrsta sigri á Aljóðlegu móti utan Smáþjóðaleikanna. Á morgun verður svo haldið áfram og hefst keppnin í karlaflokki kl. 7:00 að okkar tíma en finalinn verður kl.13:45.
AddThis Social Bookmark Button
 
Ásgeir í fyrsta sæti fyrir úrslit Skoða sem PDF skjal
Fimmtudagur, 04. febrúar 2010 13:30
Þá er undankeppninni í Hollandi lokið í dag og er Ásgeir í 1.sæti með 578 stig. Hann var að skjóta ágætlega framan af 95-99-98-96-98 en átti slakan endi, 92. Í öðru sæti er Rúmeninn Alexandru Sauca með 577 og í því þriðja er Búlgarinn Tanyu Kiriakov mðe 576 stig, en hann hefur þrívegis hlotið verðlaun á Ólympíuleikum, gullið fékk hann 1988 í loftskammbyssunni og brons 1996 en síðan fékk hann gullið í fríbyssunni árið 2000 í Sidney. Í fyrra hafnaði hann í 9.sæti í loftskammbyssunni.  Það er því ljóst að finallinn verður afar spennandi en hann hefst að okkar tíma kl.16:00.
AddThis Social Bookmark Button
 
Ásgeir að keppa í Hollandi Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 03. febrúar 2010 14:59

Skammbyssuskyttan okkar hann Ásgeir Sigurgeirsson, er nú staddur í Haag í Hollandi. Hann er þar að taka þátt í Intershoot en það eru þrjú sterk mót, 1 mót á dag í loftbyssugreinunum. Hann keppir þar í loftskammbyssu karla. Verður hægt að fylgjast með skorinu hans í beinni útsendingu hérna næstu þrjá daga, á morgun fimmtudag kl.11:30, að íslenskum tíma, og svo final kl.16:00, föstudag kl. 07:00 og final kl.13:45 og á laugardaginn kl.10:15 og finalinn kl.15:30. Vefmyndavélar eru einnig í keppnissalnum og má þar fylgjast með keppendum. 

AddThis Social Bookmark Button
 
Enginn styrkur úr Íþróttasjóði í ár Skoða sem PDF skjal
Mánudagur, 25. janúar 2010 17:29

Mennta-og menningarmálaráðherra var að tilkynna okkur að félagið fái engan styrk úr Íþróttasjóði 

AddThis Social Bookmark Button
Nánar...
 
Stöðluð skammbyssa í morgun Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 23. janúar 2010 15:17
Karl Kristinsson úr Skotfélagi Reykjavíkur sigraði á Landsmóti STÍ í Staðlaðri skammbyssu sem haldið var í Egilshöllinni í morgun. Karl hlaut 524 stig. Í öðru sæti varð Hjörleifur Hilmarsson frá Skotfélagi Suðurlands og í því þriðja Jón Árni Þórisson úr SR. Myndir frá mótinu eru komnar hérna.
AddThis Social Bookmark Button
 
<< Fyrsta < Fyrri 251 252 253 254 255 256 257 258 259 260 Næsta > Síðasta >>

Síða 259 af 287

Á Döfinni

Auglýsing
Álfsnes - leiðarvísir
Auglýsing
Álfsnes - Skotsvæði
Auglýsing
Egilshöll - 50m salur
Auglýsing
Egilshöll - Loftbrautir
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing