Mánudagur, 27. maí 2013 15:26 |
Fámennt en góðmennt var á Maí-móti SR í skeet sem fram fór í gær. Skotnir voru tveir hringir og final. Kjartan Örn Kjartansson sigraði, Örn Valdimarsson varð annar og Hjörtur Sigurðsson þriðji.
|
|
Mánudagur, 27. maí 2013 13:20 |
ISSF tímaritið er nú fáanlegt á tölvutæku formi fyrir iPAD tölvurnar hérna.
|
Sunnudagur, 26. maí 2013 09:14 |
Smáþjóðaleikarnir í Luxemburg hefjast á morgun. Við eigum flesta keppendur í skotgreinunum að þessu sinni en þau eru í loftriffli, Guðmundur Helgi Christensen, Jórunn Harðardóttir og Írisi Evu Einarsdóttur. Í loftskammbyssu þau Ásgeir Sigurgeirsson, Kristínu Sigurðardóttur og Jórunni Harðardóttur. Einnig er í hópnum Thomas Viderö úr Skotfélagi Kópavogs. Fararstjóri hópsins er Halldór Axelsson og liðsstjóri Sigurgeir Arnþórsson. Keppni í loftriffli fer fram á miðvikudaginn 29.maí bæði í karla-og kvennaflokki. Í loftskammbyssu er keppt föstudaginn 31.maí einnig í bæði kvenna-og karlaflokki. Ekki er keppt í Skeet að þessu sinni. /gkg
|
Sunnudagur, 26. maí 2013 09:02 |
Ásgeir Sigurgeirsson hafnaði í 22.sæti í frjálsu skammbyssunni í morgun en 70 kepptu. Skorið var ágætt eða 93 91 93 96 91 89. Hann tekur svo þátt í loftskammbyssukeppninni á þriðjudaginn.
|
Laugardagur, 25. maí 2013 15:18 |
Eftir ársþing Skotíþróttasambands Íslands sitja þessir í stjórn þess næsta árið. Í aftari röð f.v. Jórunn Harðardóttir í varastjórn, Jóhann A.Kristjánsson og Guðmundur Kr Gíslason í aðalstjórn og Sigurgeir Arnþórsson í varastjórn. Í neðri röð f.v. Kjartan Friðriksson í aðalstjórn, Halldór Axelsson formaður og Jón S. Ólason í aðalstjórn.
|
Laugardagur, 25. maí 2013 08:31 |
Á heimbikarmótinu sem haldið er í München, Þýskalandi þessa dagana, keppti Ásgeir Sigurgeirsson í undanrásum í Frjálsri skammbyssu í morgun og komst áfram með glæsibrag. Hann skoraði 554 stig og varð í 10.sæti af 44 sem tóku þátt í fyrri riðlinum. Seinni riðillinn hefst núna kl.09:15 og eru þar aðrir 50 keppendur. Aðalkeppnin hefst svo í fyrramálið kl. 06:15 að okkar tíma.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 171 172 173 174 175 176 177 178 179 180 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 174 af 293 |