Sunnudagur, 05. maí 2019 21:28 |
Á Íslandsmótinu í 50 metra Þrístöðuriffli sem haldið var í Kópavogi í dag bætti Guðmundur Helgi Christensen úr Skotfélagi Reykjavíkur Íslandsmet sitt, 1,119 stig og varð Íslandsmeistari í karlaflokki. Einnig setti Viktoría E. Bjarnarson úr Skotfélagi Reykjavíkur nýtt Íslandsmet í Unglingaflokki, 931 stig og varð þvi Íslansmeistari Unglinga. Í karlaflokki varð Þórir Kristinsson úr Skotfélagi Reykjavíkur í öðru sæti með 1,008 stig og Valur Richter úr Skotíþróttafélagi Ísafjarðar þriðji með 985 stig. Í kvennaflokki varð Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur Íslandsmeistari með 1,079 stig og önnur varð Guðrún Hafberg úr Skotíþróttafélagi Kópavogs með 958 stig. Í liðakeppninni varð sveit Skotfélags Reykjavíkur Íslandsmeistari með Guðmund Helga, Þóri Kristinssson og Þorstein Bjarnarson innanborðs með 3,019 stig. Í öðru sæti varð sveit Skotíþróttafélags Ísafjarðar en hana skipuðu Valur Richter, Ingvar Bremnes og Leifur Bremnes, með 2,835 stig. Skorin eru hérna.
Á laugardaginn fór fram Íslandsmótið í 50m liggjandi riffli og er hægt að lesa um mótið á síðu STÍ hérna.
|
|
Mánudagur, 29. apríl 2019 10:16 |
Íslandsmeistaramótið í Grófri skammbyssu fór fram í Kópavogi í dag. Ívar Ragnarsson úr SFK sigraði með 552 stig, annar varð Friðrik Þ. Goethe úr SFK með 540 stig og í þriðja sæti lenti Karl Kristinsson úr SR með 538 stig. Í liðakeppninni sigraði A-lið Skotíþróttafélags Kópavogs (Ívar Ragnarsson,Eiríkur Ó.Jónsson,Ólafur Egilsson) með 1,561 stig, í öðru sæti B-sveit Skotíþróttafélags Kópavogs (Friðrik Þ.Goethe, Sigurgeir Guðmundsson,Guðmundur T. Ólafsson) og þriðja sæti A-sveit Skotfélags Reykjavíkur (Karl Kristinsson, Jón Á. Þórisson, Engilbert Runólfsson). Nánar á úrslitasíðu STÍ.
|
Laugardagur, 27. apríl 2019 21:03 |
Íslandsmótið í Sport skammbyssu fór fram í Egilshöllinni í dag. Íslandsmeistari varð Jón Þór Sigurðsson með 563 stig, annar varð Ívar Ragnarsson með 558 stig og í þriðja sæti hafnaði Friðrik Þór Goethe með 556 stig. Þeir skipuðu jafnframt A-sveit Skotíþróttafélags Kópavogs sem setti nýtt Íslandsmet 1,677 stig. Í öðru sæti varð B-sveit Skotíþróttafélags Kópavogs með 1,597 stig en sveitina skipuðu Grétar Mar Axelsson, Eiríkur Óskar Jónsson og Ólafur Egilsson. Í þriðja sæti hafnaði sveit Skotfélags Reykjavíkur en hana skipuðu Karl Kristinsson, Jón Árni Þórisson og Engilbert Runólfsson.Â
|
Föstudagur, 26. apríl 2019 20:17 |
Ásgeir Sigurgeirsson keppir í loftskammbyssu á heimsbikarmótinu í Peking í Kína í nótt. Hann er í fyrri riðlinum sem byrjar kl.09:00 í fyrramálið eða kl. 01:00 að okkar tíma. Hægt verður að fylgjast með á þessari slóð.
|
Þriðjudagur, 23. apríl 2019 22:25 |
Páskamót SR í SKEET verður haldið laugardaginn 27.apríl á Álfsnesi og hefst kl.10:00. Skotnir verða 3 hringir
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 51 52 53 54 55 56 57 58 59 60 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 59 af 291 |