Þriðjudagur, 24. september 2013 16:12 |
BR50 mót verður haldið MIÐVIKUDAGINN 2.október nk. á Álfsnesi.
Fyrirkomulag er með þeim hætti að skotin eru 25 stk skot á keppnisskífu af 50 metra færi, ásamt ótakmörkuðum fjölda af æfingarskotum á sömu skífu. Athugið að skotið er með 22. Long Rifle eingöngu á 50 metra færi. BR50 stendur fyrir Benchrest fyrir cal. 22LR á 50metra færi. Öllum er frjáls þátttaka og er sama keppnisgjald fyrir innanfélagsmenn og þá sem ekki eru í félaginu - verið velkomin þið sem eigið 22 riffla !
|
Nánar...
|
|
Mánudagur, 23. september 2013 13:02 |
Laugardaginn síðastliðinn fór fram Kvennaskotmótið Skyttan í Skeet og er þetta annað árið sem mótið fer fram. Keppendur að þessu sinni voru ellefu talsins. Markmiðið með mótinu er að kynna íþróttina fyrir konum og aðeins að hrista þær saman. Keppt er í tveim flokkum, nýliðar og svo reynslumeiri skyttur. Nýliðarnir skjóta 50 dúfur á völdum pöllum en reynslumeiri skjóta 75 dúfur.Skotfélag Reykjavíkur átti fimm keppendur á mótinu, tvær sem kepptu í nýliðum og svo þrjár í flokki reynslumeiri. Nýliðarnir hjá SR stóðu sig eins og hetjur og fóru heim með fyrsta og þriðja sæti sem er alveg frábær árángur. Það voru þær C.Lisa Óskarsdóttir úr SR sem fór með sigur ‚ Ásrún úr SIH var önnur og Ása Jakops SR hreppti þriðja sætið. Í flokki reyslumeiri var það svo Helga úr SIH sem fór með sigur af hólmi, okkar kona Árný endaði í öðru sæti og Guðbjörg úr SIH var svo þriðja. Mótið var alveg frábært í alla staði, veðrið lék við okkur, allir mættu með góða skapið og erum við strax farnar að hlakka til að halda mótið að ári hjá okkur í SR J
|
Laugardagur, 21. september 2013 15:46 |
Eftir fyrri daginn á 100 metra færi er staðan á Íslandsmótinu í Bench Rest í skori þannig að Bergur Arthursson er fyrstur með 250/16x, Hjörleifur Hilmarsson annar með 250/15x og Egill Þ.Ragnarsson þriðji einnig með 250/15x. Keppnin er hnífjöfn einsog sjá má af því að sjöundi maður er með 249/10x. Nokkrar myndir frá mótinu eru komnar hérna. Á morgun heldur keppnin áfram og verður þá skotið á 200 metra færi. /gkg
|
Mánudagur, 16. september 2013 14:18 |
Brautaskipting á Íslandsmótinu um helgina verður ákveðin með útdrætti. Drátturinn verður kl.19:00 á fimmtudaginn á Álfsnesi og verður dregið um brautir fyrir báða keppnisdagana. Mótsgjald er kr. 3500kr.
|
Laugardagur, 14. september 2013 19:17 |
Íslandsmeistaramót í Benchrest Skor HV-flokki, 100m og 200m, verður haldið dagana 21. og 22. sept nk. Við minnum keppendur á að skráningu í mótið lýkur þriðjudagin kemur. Keppt verður á 100m á laugardeginum og 200m á sunnudeginum. Mótið hefst kl 10:00 báða dagana. Mæsting er samkvæmt reglum Stí. Skotskýlið verður lokað á laugardeginum fyrir aðra starfsemi til kl 14:00, eða þar til mótinu lýkur.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 161 162 163 164 165 166 167 168 169 170 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 162 af 293 |