Innanfélagsmót í Benchrest laugardaginn 10. mars Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 07. mars 2012 14:44

Þeir sem ætla sér að taka þátt í mótinu á laugardaginn eru beðnir að fylgjast með hér á síðunni. Ef veðurspá verður óhagstæð er möguleiki á að mótinu verði FRESTAÐ - Sjá upplýsingar um mótið hér að neðan - vinsamlega fylgist með.......

AddThis Social Bookmark Button
 
Örn vann í dag Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 03. mars 2012 20:45

SRMOT03032012Úrslit í innanfélagsmótinu í skeet í dag urðu sem hér segir:
1.   Örn               18-23-24 = 65 - 24 = 89
 2.   Þorgeir          25-21-20 = 66 - 21 = 87
3.   Gummi P.     19-20-17 = 56 - 21 = 77
4.   Hjörtur          20-15-19 = 54 - 21 = 75
5.   Óskar           17-20-17 = 54 - 19 = 73
6.   Gunnar Þór  17-17-19 = 53 - 15 = 68
7.   Magni            15-16-17 = 48
8.   Brandur         17-15-16 = 48
9.   Sigtryggur     12-14-13 = 39
10. Karl Friðrik    13-12-12 = 37
11. Þorsteinn      14-10-12 = 36
AddThis Social Bookmark Button
 
Innanfélagsmót í Benchrest á 100 metrum Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 03. mars 2012 10:14

BATRIFLE_01Ráðgert er að halda innanfélagsmót í benchrest laugardaginn 10. mars á Álfsnesi. Skotið verður á 100 metrum "Varmint for score" Sama flokkaskipting verður og notuð var á síðasta Áramóti.  Mótið hefst kl 12:00, mætng eigi síðar en kl 11:30. Mótið er eitt af 4 Vetrarmótum SR með þannig fyrirkomulagi að tekin verða 3 bestu úrslit hvers keppanda og samanlagður árangur þeirra lagður saman og þannig fengin úrslit í Vetrarmeistaramóti Skotfélags Reykjavíkur í Benchrest 2012. Lokað verður fyrir aðra starfsemi á riffilvellinum meðan mótið stendur yfir.

Skráning og flokkun riffla á staðnum.

Nánari upplýsingar síðar.

AddThis Social Bookmark Button
 
Innanfélagsmót í SKEET á laugardaginn Skoða sem PDF skjal
Fimmtudagur, 01. mars 2012 10:17

Á laugardagin, 3.mars, verður haldið innanfélagsmót í Skeet á völlum félagsins á Álfsnesi. Skotnir verða 3 hringir. Skráning á staðnum en mótið hefst kl. 12:00

AddThis Social Bookmark Button
 
Byssusýning á Stokkseyri um helgina Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 29. febrúar 2012 10:05

Árleg byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri í samvinnu við verslunina Vesturröst verður haldinn laugardaginn 3. og sunnudaginn 4. mars 2012 frá kl. 11–18 í húsakynnum Veiðisafnsins, Eyrarbraut 49 Stokkseyri. Verður þar fjölbreytt úrval skotvopna til sýnis svo sem haglabyssur, rifflar, skammbyssur, herrifflar ásamt ýmsu frá landskunnum söfnurum m.a ein af haglabyssum Jóns Þorsteinssonar frá Ólafsfirði og Drífur Jóns Björnssonar frá Dalvik.

AddThis Social Bookmark Button
 
Karl sigraði í dag Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 25. febrúar 2012 18:35

Karl Kristinsson úr Skotfélagi Reykjavíkur sigraði á Landsmóti STÍ í Staðlaðri skammbyssu í Egilshöll í dag. Í kvennaflokki sigraði Þórhildur Jónasdóttir einnig úr Skotfélagi Reykjavíkur. A-Sveit Skotfélags Reykjavíkur sigraði í liðakeppninni. Myndir komnar hérna. Eins eru úrslitin hérna.

AddThis Social Bookmark Button
 
<< Fyrsta < Fyrri 201 202 203 204 205 206 207 208 209 210 Næsta > Síðasta >>

Síða 208 af 287

Á Döfinni

Auglýsing
Álfsnes - leiðarvísir
Auglýsing
Álfsnes - Skotsvæði
Auglýsing
Egilshöll - 50m salur
Auglýsing
Egilshöll - Loftbrautir
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing