Laugardagur, 01. janúar 2022 13:39 |
Vegna mikils fjölda smita í þjóðfélaginu hefur mótunum sem halda átti um næstu helgi verið aflýst.
8.og 9.janúar í Egilshöll
|
|
Mánudagur, 27. desember 2021 14:41 |
Yfir Jól-og áramót er lokað í Egilshöllinni frá og með 17.des 2021 og opnað að nýju þriðjudaginn 4.janúar 2022. Þetta gæti breyst í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu og verður það tilkynnt hér þegar þau mál skýrast.
|
Fimmtudagur, 16. desember 2021 14:34 |
 Stjórn félagsins hefur valið eftirtalda sem Skotíþróttamenn félagsins árið 2021:
Í karlaflokki er Ásgeir Sigurgeirsson f.1985 Skotíþróttamaður SR 2021.
Hann tryggði sér keppnisrétt á Ólympíuleikunum í Tókýó 2021 með frábærum árangri á erlendum vettvangi undanfarin ár. Hann hefur sigrað á öllum innlendum mótum í sínum greinum, loftskammbyssu og frjálsri skammbyssu, Â svo lengi sem elstu menn muna. Hann er sem stendur í 45.sæti á Heimslistanum og í 25.sæti á Evrópulistanum.
Í kvennaflokki er Dagný Huld Hinriksdóttir f.1979 Skotíþróttamaður SR 2021.
Hún varð Íslandsmeistari í haglabyssugreininni Compak Sporting í sumar og vann einnig til verðlauna á Landsmótum STÍ í þeirri grein. Einnig vann hún til fjölda verðlauna í haglabyssugreininni Skeet. Hún keppti í ár fyrir Íslands hönd á Heimsbikarmótinu á Ítalíu og á Evrópumeistaramótinu í Króatíu, þar sem hún stóð sig með prýði.
|
Sunnudagur, 12. desember 2021 17:50 |
Á Landsmóti STÍ í 50m Þrístöðuriffli, sem fram fór í Reykjavík í dag, sigraði Guðmundur Helgi Christensen úr SR í karlaflokki með 1050 stig, annar varð Valur Richter úr SÍ og Leifur Bremnes SÍ varð þriðji með 917 stig. Í kvennaflokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR með 1065 stig, Íris Eva Einarsdóttir úr SR varð önnur með 958 stig og Guðrún Hafberg SÍ í því þriðja með 903 stig. Sveit SÍ hlaut gullið með 2799 stig. Nánar á úrslitasíðu STÍ:
|
Laugardagur, 11. desember 2021 16:19 |
    Á Landsmóti STÍ í 50 metra liggjandi riffli (prone) féllu tvö Íslandsmet. Fyrst í karlaflokki þar sem Jón Þór Sigurðsson úr SFK sigraði með 624,3 stig og síðar í Unglingaflokki kvenna þar sem Viktoría Erla Bjarnarson úr SR sigraði með 576,9 stig og Karen Rós Valsdóttir SÍ varð önnur með 515,7 stig.Â
Í öðru sæti í karlaflokki varð Valur Richter SÍ með 606,7 stig og þriðji varð Guðmundur Valdimarsson SÍ með 601,0 stig.
Í kvennaflokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR með 613,9 stig, önnur varð Íris Eva Einarsdóttir SR með 593,5 stig og þriðja varð Guðrún Hafberg úr SÍ með 575,2 stig. Í liðakeppni karla sigraði sveit SÍ með 1.808,4 stig og sveit SR varð önnur með 1.753,8 stig. Í kvennaflokki hlaut sveit SR gullið með 1.784,3 stig og sveit SÍ silfrið með 1.604,2 stig. Nánari úrslit eru á úrslitasíðu STÍ, og eins koma myndir inná Facebook síðu SR.
|
Laugardagur, 11. desember 2021 10:15 |
Jón Þór Sigurðsson úr SFK bætti eigið Íslandsmet í rifrilskotfimi í dag, skaut núna 624,3 stig en eldra metið var 623,7 stig. Nánari fréttir af Landsmótinu í Egilshöllinni koma síðar í dag en keppni stendur nú yfir í seinni riðlunum.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 28 af 293 |