Sunnudagur, 05. desember 2021 12:54 |
Landsmót STÍ í Staðlaðri skammbyssu fór fram í Egilshöllinni í Reykjavík í dag. Karl Kristinsson úr SR sigraði með 519 stig, Joseph T. Foley úr SFK varð annar með 508 stig og í þriðja sæti Magnús Ragnarsson úr SKS með 502 stig. Í liðakeppninni sigraði sveit SR með 1,474 en silfrið hlaut sveit SFK með 1,446 stig. Nánar á úrslitasíðu STÍ.
|
|
Laugardagur, 04. desember 2021 18:41 |
Landsmót Stí í loftgreinum var rétt í þessu að ljúka í aðstöðu Skotdeildar Keflavíkur. Alls voru 16 keppendur skráðir og einn keppandi sem keppti í báðum greinum.
Guðmundur Helgi Christensen úr Skotfélagi Reykjavíkur sigraði í karlaflokki í loftrifflinum með 576.0 stig, í öðru sæti var svo Þórir Kristinsson einnig úr Skotfélagi Reykjavíkur með 534.7 stig og félagi þeirra Þorsteinn Bjarnason var svo í þriðja sæti með 503.5 stig. Saman tóku þeir liðakeppnina með 1616.7 stig.
Jórunn Harðardóttir Skotfélagi Reykjavíkur sigraði loftriffil kvenna með 580.0 stig og Guðrún Hafberg úr Skotíþróttafélagi Ísafjarðarbæjar var í öðru sæti með 472.0 stig.
Í loftskammbyssu kvenna sigraði Jórun Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur með 542 stig og í öðru sæti var Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir Skotgrund með 498 stig. Í unglingaflokki kvenna var Sóley Þórðardóttir í fyrsta sæti aðeins 4 stigum frá eigin Íslandsmeti. Forföll urðu í unglingaflokki karla.
Magnús Ragnarsson frá Skotíþróttafélaginu Skyttunum kom sá og sigraði í karlaflokki í loftskammbyssu. Hann skaut sig úr 3. flokk í 2. flokk á skori sem var 4 stigum frá 1. flokks viðmiðinu. Í öðru sæti var Bjarki Sigfússon frá Skotíþróttafélagi Kópavogs og í þriðja sæti var svo Hannes H. Gilbert einnig í Skotíþróttafélagi Kópavogs. Karlasveit Skotíþróttafélags Kópavogs var svo í fyrsta sæti í liðakeppninni með 1502 stig.
Skorblaðið er svo hérna.
|
Þriðjudagur, 30. nóvember 2021 18:06 |
Landsmót í Staðlaðri skammbyssu fer fram í Egilshöllinni á sunnudaginn. Keppni hefst kl.09:00.. Hægt verður að fylgjast með skorinu í beinni hérna
|
Sunnudagur, 07. nóvember 2021 11:10 |
Íslandsmeistaramótið í Loftriffli fór fram í Egilshöllinni í Reykjavík í dag. Íslandsmeistari í kvennaflokki varð Íris Eva Einarsdóttir úr SR með 591,8 stig, í öðru sæti Jórunn Harðardóttir úr SR með 581,4 stig og í þriðja sæti Guðrún Hafberg úr SÍ með 483,2 stig. Í karlaflokki varð Guðmundur Helgi Christensen úr SR Íslandsmeistari með 588,4 stig og Þorsteinn B. Bjarnarson úr SR hlaut silfrið með 498,7 stig. Nánar á úrslitasíðu STÍ. Eins eru myndir á FB-síðufélagsins.
|
Laugardagur, 06. nóvember 2021 16:30 |
Íslandsmeistaramótið í Loftskammbyssu fór fram í Egilshöllinni í Reykjavík í dag. Íslandsmeistari í kvennaflokki varð Jórunn Harðardóttir úr SR með 542 stig, í öðru sæti varð Aðalheiður L. Guðmundsdóttir úr SSS með 518 stig og þriðja sæti hlaut Sigurveig H. Jónsdóttir úr SFK með 500 stig. Í karlaflokki sigraði Ívar Ragnarsson úr SFK með 557 stig, Magnús Ragnarsson úr SKS með 548 stig og þriðji varð Bjarki Sigfússon úr SFK með 533 stig. Í unglingaflokki karla hlaut Óðinn Magnússon úr SKS gullið með 447 stig. Í unglingaflokki kvenna sigraði Sóley Þórðardóttir úr SA með 520 stig og í öðru sæti varð Elísabet Xiang Sveinbjörnsdóttir með 405 stig. Í liðakeppni varð sveit SFK Íslandsmeistari með 1,615 stig en silfrið hlaut sveit SÍ með 1,329 stig. Nánari úrslit má sjá á úrslitasíðu STÍ og myndir á FB-síðu félagsins.
|
Fimmtudagur, 04. nóvember 2021 11:23 |
Riðlaskipting Íslandsmótanna um helgina er komin.
Riðill 1 kl. 09:00, Riðill 2 kl. 11:00
Keppnisæfing loftskammbyssa föstudag kl. 18-20
Keppnisæfing loftriffill laugardag kl 14-16
Hægt verður að fylgjast með skorinu í beinni með því að smella hér.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 27 af 291 |