Ásgeir keppir í Kóreu Skoða sem PDF skjal
Mánudagur, 04. apríl 2011 19:57

Ásgeir Sigurgeirsson heldur utan til keppni í Kóreu á morgun. Hann keppir á heimsbikarmótinu í Changwon í frjálsri skammbyssu á laugardaginn og í loftskammbyssu á mánudaginn. Nánari tímasetningar koma hér innan tíðar.

AddThis Social Bookmark Button
 
Innanfélagsmót í loftgreinum á fimmtudaginn Skoða sem PDF skjal
Fimmtudagur, 31. mars 2011 22:35

Innanfélagsmót í loftriffli og loftskammbyssu verður haldið í Egilshöllinni á fimmtudaginn 7.apríl. Mótið hefst kl.18. Keppendur geta byrjað strax kl.18:10. Skráning á staðnum. Keppnisrétt hafa allir félagsmenn SR.

AddThis Social Bookmark Button
 
Ásgeir og Tryggvi sigruðu í kvöld Skoða sem PDF skjal
Fimmtudagur, 31. mars 2011 22:32

Á Superfinal mótinu í kvöld sigraði Ásgeir Sigurgeirsson í loftskammbyssu eftir spennandi keppni. Í loftriffilkeppninni vann Sigfús Tryggvi Blumenstein. Fjöldi áhorfenda mætti og hvatti keppendur með áhöldum úr búsáhaldabyltingunni. Fjöldi keppenda mætti til leiks, 15 í loftskammbyssu og 7 í loftriffil.

AddThis Social Bookmark Button
 
MÓT á FIMMTUDAG í SúperFinal Skoða sem PDF skjal
Mánudagur, 28. mars 2011 17:14

Á fimmtudaginn, 31.mars, verður haldið innanfélagsmót í SÚPERFINAL. Allir félagsmenn okkar eru gjaldgengir óháð keppnisrétti.

Hann hefst kl.20:00 og því þurfa keppendur að vera mættir 30 mín fyrr.

Þið getið mætt frá kl.18:00 og æft ykkur áður en finalinn hefst.

Hann fer þannig fram að við skjótum öll samtímis eitt skot á skífu. Sá sem á lægsta skorið fellur út og svo koll af kolli þar til einn situr eftir sem sigurvegari. Engin skor verða skráð því þetta er útsláttarkeppni.

Ætlast er til að áhorfendur láti í sér heyra á meðan keppt er og köll og klöpp eru algerlega heimil, s.s. enginn friður. Þetta er svipað fyrirkomulag og hefur verið prófað á nokkrum alþjóðlegum mótum undanfarið og fengið frábærar viðtökur.

Kveðja

Gummi Gísla

AddThis Social Bookmark Button
 
Ásgeir Íslandsmeistari í Frjálsri skammbyssu Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 19. mars 2011 17:11

Ásgeir Sigurgeirsson sigraði með 529 stig, á Íslandsmótinu í Frjálsri skammbyssu í dag. Í öðru sæti varð Jórunn Harðardóttir með 493 stig og í 3ja sæti varð Guðmundur H.Christensen með 483 stig.

AddThis Social Bookmark Button
 
Ásgeir hefur lokið keppni á EM Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 05. mars 2011 09:45
Ásgeir endaði í 41 sæti af 60 á EM í Brescia. Franck Dumoulin frá Frakklandi er efstur inní úrslit með 589 stig en finalinn hefst kl.13:0 í dag
AddThis Social Bookmark Button
 
<< Fyrsta < Fyrri 231 232 233 234 235 236 237 238 239 240 Næsta > Síðasta >>

Síða 231 af 286

Á Döfinni

Auglýsing
Álfsnes - leiðarvísir
Auglýsing
Álfsnes - Skotsvæði
Auglýsing
Egilshöll - 50m salur
Auglýsing
Egilshöll - Loftbrautir
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing