|
Miðvikudagur, 26. ágúst 2015 19:36 |
|
Um helgina er Reykjavík Open haglabyssumótið á dagskrá á Álfsnesi. Samhliða er Bikarmeistaramót STÍ haldið. Æfingatími keppenda 17-20 á föstudag.
|
|
|
Föstudagur, 21. ágúst 2015 07:57 |
|
Í dag hefst kvennakeppnin LADIES GRAND PRIX á Álandseyjum. Keppt er í Ólympísku haglabyssugreininni "SKEET". Að þessu sinni keppa 4 íslenskar konur á mótinu en þær eru Snjólaug M.Jónsdóttir, Árný G.Jónsdóttir, Dagný H.Hinriksdóttir og Helga Jóhannsdóttir. Keppnishaldarar ætla að reyna að birta framvindu mála á heimasíðu sinni hérna. Keppni hefst í dag og lýkur á morgun.
|
|
Laugardagur, 08. ágúst 2015 21:45 |
|
Á Íslandsmótinu í haglabyssugreininni SKEET sem haldið er á Akureyri um helgina, sigraði Snjólaug M. Jónsdóttir úr Skotfélaginu Markviss á Blönduósi í kvennaflokki. Í öðru sæti varð Helga Jóhannsdóttir úr Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar og í þriðja sæti hafnaði Dagný H. Hinriksdóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur. Þess má geta að þær stöllur halda til keppni á kvennamótinu Ladies Grand Prix sem haldið er árlega og verður þetta árið haldið á Álandseyjum dagana 19.-22.ágúst.
|
|
Fimmtudagur, 06. ágúst 2015 07:22 |
|
 Um næstu helgi eru tvö Íslandsmót Skotíþróttasambandsins í haglabyssugreinunum á dagskrá. Á Akureyri er það SKEET og er riðlaskiptingin komin hérna. Í Hafnarfirði er það svo Norrænt Trap og riðlarnir eru hérna.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 121 122 123 124 125 126 127 128 129 130 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 123 af 303 |