Starfsleyfi SKOTREYN fellt úr gildi Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 04. janúar 2023 13:56

alfsnes_loftmyndMeð úrskurði sínum dagsettum 30.desember s.l. hefur Úrsk­urðar­nefnd um­hverf­is- og auðlinda­mála falið Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar að fella úr gildi starfsleyfi SKOTREYNar á Álfsnesi. 

Í niður­stöðu nefndarinnar kem­ur fram að ekki liggi fyr­ir að land­notk­un hafi verið breytt frá því að úr­sk­urður nefnd­ar­inn­ar var kveðinn upp síðast. Þá fari starfs­leyfið auk þess í bága við ákvæði skipu­lags­reglu­gerðar um land­notk­un­ar­flokka en í þeirri reglu­gerð er ekki að finna heim­ild til að víkja frá gild­andi land­notk­un sam­kvæmt skipu­lagi. Með vís­an til þess verði því að fella hið kærða starfs­leyfi úr gildi. 

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar sendi bréf til SKOTREYNar laugardaginn 31.desember s.l. þar sem leyfið er afturkallað.

Þetta hefur væntanlega áhrif á nýtt starfsleyfi Skotfélags Reykjavíkur sem var í auglýsingu í desember og lauk athugasemdartímanum um það þann 28.desember s.l.

Nú verða embættismenn Reykjavíkurborgar að vinna hratt að því að breyta Aðalskipulagi þannig að það uppfylli skilyrði laga um landnotkun undir skotíþróttasvæði.

Athyglisvert er að hið opinbera skuli leyfa sér að stöðva þessa starfsemi fyrirvaralaust, þar sem um mistök í orðalagi er orsök lokunar en ekki aðsteðjandi hætta fyrir nokkurn mann. Skaðinn er þegar orðinn mikill fyrir bæði félögin á Álfsnesi og hlýtur að koma til þess að sækja þurfi skðabætur til hins opinbera til að bæta fyrir það tjón sem þetta hefur valdið þeim.

AddThis Social Bookmark Button
 
Jórunn jafnaði Íslandsmetið í loftskammbyssu Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 17. desember 2022 15:17

jorunnhardarap40.jpgJórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur jafnaði í dag eigið Íslandsmet, 560 stig, í Loftskammbyssu á Landsmóti STÍ sem haldið var í Egilshöllinni í dag. Silfrið í kvennaflokki hlaut Aðalheiður L. Guðmundsdóttir úr SSS með 537 stig. Í karlaflokki sigraði Guðmundur A. Hjartarson úr SK með 509 stig, Hannes H. Gilbert úr SFK varð annar með 494 stig og Bjarni Sigurðsson úr SK varð þriðji með 485 stig. Elísabet X. Sveinbjörnsdóttir hlaut gullið í unglingaflokki með 466 stig. Nánar á úrslitasíðu www.sti.is

AddThis Social Bookmark Button
 
Landsmót í loftbyssu á laugardaginn Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 14. desember 2022 15:28

2022 apar60 lmot 17desridlar2022 ar60 jlmot 17desLandsmót í loftskammbyssu fer fram í Egilshöllinni á laugardaginn. Það hefst kl.09:00. Riðlarnir verða tveir kl.9 og 11 . Jafnframt er Jólamót SR í loftriffli keyrt með seinni riðlinum.

Fylgjast má með skorinu í beinni hérna: Loftskammbyssa hér og Loftriffill hér.

AddThis Social Bookmark Button
 
Jón Þór Sigurðsson sigraði á mótinu í dag Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 03. desember 2022 17:24

2022 lmot50mriff3desLandsmót STÍ í 50 metra liggjandi riffli fór fram í Egilshöllinni í dag. Í karlaflokki sigraði Jón Þór Sigurðsson úr SFK með 626,0 stig, Guðmundur Valdimarsson úr SÍ varð annar með 608,9 stig og þriðji Guðmundur Helgi Christensen úr SR með 606,2 stig. Í stúlknaflokki hlaut Karen Rós Valsdóttir úr SÍ gullið með 522,4 stig. Í drengjaflokki bætti Óðinn Magnússon úr SKY eigið Íslandsmet með 566,2 stig og hlaut gullið. Nánar á úrslitasíðu STÍ.

AddThis Social Bookmark Button
 
Landsmót í 50m liggjandi riffli á laugardaginn Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 30. nóvember 2022 14:00

60sk skyttaLandsmót í liggjandi riffli á 50 metrum fer fram í Egilshöllinni á laugardaginn. Skráðir eru 10 keppendur til leiks úr 4 aðildarfélögum STÍ, sjá nánar hérna.

Hægt verður að fylgjast með skorinu í beinni hérna.

AddThis Social Bookmark Button
 
Karl Kristinsson sigraði í dag Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 27. nóvember 2022 13:11

2022grof27nov123jpgLandsmót STÍ í Grófri skammbyssu fór fram í Egilshöllinni í dag. Karl Kristinsson úr SR sigraði með 500 stig, Jón Árni Þórisson úr SR varð annar með 479 stig og Engilbert Runólfsson úr SR þriðji með 473 stig. Nánar á úrslitasíðu STÍ hérna.

AddThis Social Bookmark Button
 
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Síðasta >>

Síða 12 af 286

Á Döfinni

Auglýsing
Álfsnes - leiðarvísir
Auglýsing
Álfsnes - Skotsvæði
Auglýsing
Egilshöll - 50m salur
Auglýsing
Egilshöll - Loftbrautir
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing