Opnun eftir 4.maí Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 25. apríl 2020 19:40
sr covid 4mai2020Nú líður að því að við megum fara að nota skotsvæðið aftur. Auðvitað förum við afar varlega í þessa hluti.
Opnað verður þriðjudaginn 5.maí kl.16:00 - 20:00 og laugardaginn 9.maí kl.10:00 - 16:00 og þriðjudagar og laugardagar verða opnunartímar út maí.
Vetrarstarfinu í Egilshöll er lokið, en félagsmenn með aðgengi geta komist til æfinga en þurfa að fylgja almennum skilyrðum einsog aðrir.
AddThis Social Bookmark Button
 
Skotvopnanámskeiðum UST frestað Skoða sem PDF skjal
Þriðjudagur, 07. apríl 2020 14:11

Skotvopnanámskeiðum UST hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Nánar hérna

AddThis Social Bookmark Button
 
Allt íþróttastarf fellur niður Skoða sem PDF skjal
Föstudagur, 20. mars 2020 18:30

Allt íþróttastarf fellur niður

Heilbrigðisráðuneytið, í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið, hefur sent frá sér leiðbeinandi viðmið um hvernig beri að túlka auglýsingar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar og takmörkun á skólastarfi vegna farsóttar þegar kemur að íþrótta- og æskulýðsstarfi barna, ungmenna og fullorðinna.

Hvað varðar íþróttastarf barna og ungmenna er eftirfarandi beint til íþróttahreyfingarinnar:

AddThis Social Bookmark Button
Nánar...
 
Sigurður Unnar í 50.sæti á Heimsbikarmótinu á Kýpur Skoða sem PDF skjal
Föstudagur, 13. mars 2020 15:33

Ísland átti 4 keppendur á heimbikarmótinu á Kýpur sem var að ljúka. Alls mættu um 80 keppendur til leiks. Sigurður Unnar Hauksson úr SR varð í 50.sæti með 117 stig (24 23 23 25 22), Stefán Gísli Örlygsson úr SKA varð í 60.sæti með 113 stig (24 20 24 23 22) og Hákon Þór Svavarsson úr SFS í 66.sæti með 110 stig (22 20 21 24 23). Einnig tók Pétur Gunnarsson úr SR þátt sem s.k. MQS (lágmarsskor þar sem ná þarf 114 stigum) þar sem hver þjóð  má ekki senda nema 3 keppendur í aðalkeppnina. Hann náði 113 stigum (21 23 24 22 23)

AddThis Social Bookmark Button
 
Lokað á Álfsnesi og í Egilshöll næstu vikurnar Skoða sem PDF skjal
Föstudagur, 13. mars 2020 15:13

TILKYNNING FRÁ STJÓRN SKOTFÉLAGS REYKJAVÍKUR

Í ljósi nýrra aðgerða stjórnvalda til að stemma stigu við útbreiðslu COVID-19 veirunnar hefur stjórn félagsins ákveðið að loka svæðum þess í Álfsnesi og í Egilshöllinni fyrir almennar æfingar frá og með deginum í dag og þar til eftir páska. Fyrsti opnunardagur í Egilshöllinni verður því þriðjudagurinn 14. apríl og á Álfsnesi laugardaginn 18. apríl, nema annað verði ákveðið.

AddThis Social Bookmark Button
 
Reykjavíkurmeistarar krýndir á sunnudaginn Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 11. mars 2020 20:25

2020 loftrekmot8mars2020 rekmotloftrvkmeistarar2020 rekmotloft123kaap2020 rekmotloft123kaar2020 rekmotloft123kvap2020 rekmotloft123kvar2020 rekmotloftsalurReykjavíkurmótið í loftbyssugreinunum fór fram um helgina í Egilshöllinni. Í loftskammbyssu karla sigraði Ívar Ragnarsson úr SFK með 567 stig, Jón Þór Sigurðsson úr SFK varð annar með 546 stig og í þriðja sæti Karl Kristinsson úr SR með 536 stig og jafnframt Reykjavíkurmeistari 2020. Í kvennaflokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR með 552 stig og í leiðinni Reykjavíkurmeitari 2020. Sigurveig Helga Jónsdóttir úr SFK varð önnur með 524 stig og Aðalheiður Lára Guðmundsdóttir úr SSS varð þriðja með 511 stig. Í loftriffli karla sigraði Guðmundur Helgi Christensen úr SR með 587,6 stig og því Reykjavíkurmeistari 2020 og Þorsteinn B. Bjarnarson úr SR hlaut silfrið með 523,6 stig. Í kvennaflokki fékk Jórunn Harðardóttir úr SR gullið með 593,3 stig og er jafnframt Reykjavíkurmeistari 2020.

AddThis Social Bookmark Button
 
<< Fyrsta < Fyrri 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 Næsta > Síðasta >>

Síða 49 af 293

Á Döfinni

Auglýsing
Álfsnes - leiðarvísir
Auglýsing
Álfsnes - Skotsvæði
Auglýsing
Egilshöll - 50m salur
Auglýsing
Egilshöll - Loftbrautir
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing