|
Sunnudagur, 11. febrúar 2018 17:14 |
Þorsteinn B. Bjarnarson úr Skotfélagi Reykjavíkur náði silfrinu á landsmótinu í Þrístöðuriffli í dag. Nánar á www.sti.isÂÂ
|
Laugardagur, 10. febrúar 2018 17:55 |
Viktoría Erla Þ. Bjarnarson úr Skotfélagi Reykjavíkur setti nýtt Íslandsmet í unglingaflokki á Landsmóti STÍ sem haldið var í Kópavogi í dag. Keppt var í 50 metra liggjandi riffli.
|
Fimmtudagur, 08. febrúar 2018 19:49 |
Íslandsmetin á Reykjavíkurleikunum urðu 9 talsins í loftbyssugreinunum.
- Loftskammbyssa kvenna: Jórunn Harðardóttir SR – RIG2018, 3. febrúar 2018 = 557 stig
- Loftskammbyssa kvenna final: Jórunn Harðardóttir SR - RIG2018, 3. febrúar 2018 = 239,7 stig
- Loftskammbyssa unglinga stúlkur: Ingibjörg Ylfa Gunnarsdóttir SR – RIG2018, 3. febrúar 2018 = 374 stig
- Loftriffill karla final: Guðmundur Helgi Christensen SR – RIG2018, 3. febrúar 2018 = 223,9 stig
- Loftriffill kvenna final: Jórunn Harðardóttir SR – RIG2018, 3. febrúar 2018 = 239,7 stig
- Loftriffill kvenna: Jórunn Harðardóttir SR – RIG2018, 3. febrúar 2018 = 604,9 stig
- Loftriffill unglinga drengir final: Helgi S. Jónsson SK – RIG2018, 3. febrúar 2018 = 198,9 stig
- Loftriffill unglinga stúlkur: Viktoría Erla Þ. Bjarnarson SR – RIG2018, 3. febrúar 2018 = 562,3 stig
- Loftriffill unglinga stúlkur final: Viktoría Erla Þ. Bjarnarson SR – RIG2018, 3. febrúar 2018 = 141,7 stig
|
Laugardagur, 03. febrúar 2018 11:32 |
Skotíþróttakeppni RIG-Reykjavíkurleikanna fer fram í Egilshöllinni í dag. Í loftskammbyssu setti Jórunn Harðardóttir nýtt Íslandsmet í kvennaflokki, 557 stig og Ingibjörg Ylfa Gunnarsdóttir, 374 stig, í unglingaflokki kvenna, en breyting varð á reglum Alþjóða skotíþróttasambandsins ISSF í kvennakeppninni frá áramótum þannig að konur skjóta nú jafnmörgum skotum og karlar, 60 alls. Úrslitin hefjast kl.15:00 í dag.
Í loftriffli setti Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur nýtt Íslandsmet í kvennaflokki , 604,9 stig og Viktoría Erla Þ. Bjarnarson, 562,3 stig í unglingaflokki kvenna. Úrslitin hefjast kl.16:15.
Úrslit mótsins liggja nú fyrir og sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR í loftrifflinum með 239,7 stig sem er nýtt Íslandsmet kvenna í final, í öðru sæti hafnaði Guðmundur Helgi Christensen úr SR með 223,9 stig og í þriðja sæti varð Helgi S. Jónsson úr Skotdeild Keflavíkur með 198,9 stig.
Í loftskammbyssu sigraði Jórunn einnig með 219,0 sem einnig er nýtt Íslandsmet í final, í öðru sæti varð Elías M. Kristjánsson úr Skotfélagi Akranes með 207,5 stig og þriðji varð Karl Kristinsson úr SR með 188,7 stig.
Í lok móts valdi mótsstjórn skotkonu mótsins Jórunni Harðardóttur og skotkarl Guðmund Helga Christensen.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 71 72 73 74 75 76 77 78 79 80 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 76 af 291 |