Laugardagur, 10. júní 2017 12:09 |
Hreindýrapróftíminn frá 12.- 29. júní verður þannig:
Mánudaga og miðvikudaga kl. 14:00 til 20:00.
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 10:00 til 15:00
Tímapantanir hjá Gunna Sig í s: 843-0280 eða 892-9320
Nánar hérna
|
|
Miðvikudagur, 07. júní 2017 16:14 |
Landsmót STÍ í Skeet fer fram á Álfsnesi um helgina. Keppnisæfing skráðra keppenda föstudag kl.17-21
|
Fimmtudagur, 01. júní 2017 18:34 |
Skotfélag Reykjavíkur er 150 ára í dag, 2. júní. Eins og margoft hefur komið fram, er Skotfélag Reykjavíkur elsta íþróttafélag Íslands. Félagið var stofnað 1867 og starfsemi félagsins hófst við Skothúsveg sama ár, við Tjörnina í Reykjavík.
|
Nánar...
|
Sunnudagur, 28. maí 2017 09:30 |
 Á Landsmóti STÍ sem fer núna fram á Akranesi voru sett 3 Íslandsmet í kvennaflokki. Helga Jóhannsdóttir úr Skotíþróttafélagi Hafnarfjarðar náði 59/75 í undankeppninni og einnig 39/60 í úrslitunum. Í öðru sæti varð Snjólaug M.Jónsdóttir úr Skotfélaginu Markviss með 30 stig í úrslitum (40 í undankeppni) og í þriðja sæti Eva Ó.Skaftadóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur með 22 stig (31 stig í undakeppninni). Kvennalið Skotfélags Reykjavíkur bætti Íslandsmetið og náði 112 stigum. Sveitina skipa Dagný H.Hinriksdóttir (48 stig), Eva Ó.Skaftadóttir (31 stig) og Þórey I.Helgadóttir (33 stig).
Í karlaflokki sigraði Hákon Þ.Svavarsson úr Skotíþróttafélagi Suðurlands með 52 stig í úrslitum (116 í undank.), en árangur hans í úrslitum er nýtt Íslandsmet, annar varð Stefán G. Örlygsson úr Skotfélagi Akraness með 49 stig (117 í undank.) og í þriðja sæti Örn Valdimarsson úr Skotfélagi Reykjavíkur með 38 stig (104 stig í undank.)ÂÂ Skotíþróttafélag Hafnarfjarðar sigraði í liðakeppninni með 281 stig, Skotfélag Reykjavíkur varð í örðu sæti með 273 stig og í þriðja sæti sveit Skotfélags Akraness með 263 stig.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 81 82 83 84 85 86 87 88 89 90 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 86 af 293 |