Jórunn Skotíþróttakona ársins 2023 Skoða sem PDF skjal
Föstudagur, 05. janúar 2024 07:55

sti itrmarsins2013b jorjontorStjórn STÍ hefur valið Skotíþróttafólk ársins 2023 og hlaut formaður félagsins hnossið. Þetta segir í umsögninni: 

Í kvennaflokki Jórunn Harðardóttir (55 ára) úr Skotfélagi Reykjavíkur

Jórunn sigraði í keppni með Loftriffli á Reykjavíkurleikunum í vor. Hún varð einnig Íslandsmeistari í þremur greinum á árinu, í keppni með Riffli í liggjandi stöðu, í Loftriffli auk þess í keppni með Loftskammbyssu. Hún komst í úrslit á Smáþjóðaleikunum á Möltu í bæði Loftskammbyssu sem og Loftriffli en náði ekki verðlaunasæti að þessu sinni.

Í karlaflokki var það riffilskyttan Jón Þór Sigurðsson sem hlaut titilinn.

Þau fengu afhentar viðurkenningar sínar í kvöld. Það var gert samhliða vali á Íþróttamanni Ársins í hófi sem ÍSÍ og samtök íþróttafréttamanna standa árlega fyrir. Var það haldið að þessu sinni á Hilton Nordica.

AddThis Social Bookmark Button
 
Gleðilega hátíð Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 24. desember 2023 14:43

jola santa-with-gunSkotfélag Reykjavíkur óskar félagsmönnum, fjölskyldum þeirra og landsmönnum öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á komandi skotári.

AddThis Social Bookmark Button
 
Skotíþróttafólk Skotfélags Reykjavíkur 2023 Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 23. desember 2023 15:58

Stjórn félagsins hefur valið eftirtalda sem Skotíþróttamenn félagsins árið 2023:

jon_valgeirsson_m_byssu_fagnÍ karlaflokki er Jón Valgeirsson f.1973 Skotíþróttakarl SR 2023.

Jón keppir í haglabyssugreininni Compak Sporting.

Á Grand Prix mótinu í Eistlandi varð hann í 14.sæti af 189 keppendum og á Grand Prix mótinu í Lettlandi varð hann í 29.sæti af 99 keppendum. Hann varð í 2.sæti á Íslandsmeistaramótinu í haglabyssugreininni Compak Sporting. Á Heimsmeistaramótinu í Grikklandi varð hann í 181.sæti af 524 keppendum. Hann er nú í sæti 105 á heimslista FITASC en á honum eru 2,143 keppendur.

 

jorunnhardarap40.jpgÍ kvennaflokki er Jórunn Harðardóttir f.1968 Skotíþróttakona SR 2023.

Jórunn keppir bæði í riffil- og skammbysgreinum.

Jórunn sigraði í keppni með Loftriffli á Reykjavíkurleikunum í vor. Hún varð einnig Íslandsmeistari í þremur greinum á árinu, í keppni með Riffli í liggjandi stöðu, í Loftriffli auk þess í keppni með Loftskammbyssu. Hún komst í úrslit á Smáþjóðaleikunum á Möltu í bæði Loftskammbyssu sem og Loftriffli en náði ekki verðlaunasæti að þessu sinni.

AddThis Social Bookmark Button
 
Landsmót í Egilshöll um helgina Skoða sem PDF skjal
Fimmtudagur, 14. desember 2023 12:00

3psalimg_0571Um helgina fara fram tvö Landsmót STÍ í riffilgreinum.

Riðlaskiptingin er hérna: Laugardag 50m liggjandi og Sunnudag 50m Þrístaða


AddThis Social Bookmark Button
 
Jórunn sigraði í Loftriffilkeppninni í dag Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 10. desember 2023 12:42

2023 lmotar6010des123Á landsmóti STÍ í Loftriffilkeppni í dag, sigraði Jórunn Harðardóttir með 588,9 stig, Guðmundur Helgi Christensen varð í öðru sæti með 581,3 stig og í þriðja sæti varð Íris Eva Einarsdóttir með 575,0 stig. Þau keppa öll fyrir Skotfélag Reykjavíkur.

AddThis Social Bookmark Button
 
Jórunn sigraði í loftskammbyssu Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 10. desember 2023 10:23

2023 lmotap60123Á landsmóti STÍ sem haldið var af Skotíþróttafélagi Kópavogs í Digranesi í dag, laugardag, sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR með 557 stig, annar varð Ívar Ragnarsson úr SFK og Jón Þór Sigurðsson úr SFK varð þriðji.

AddThis Social Bookmark Button
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 6 af 289

Á Döfinni

Auglýsing
Álfsnes - leiðarvísir
Auglýsing
Álfsnes - Skotsvæði
Auglýsing
Egilshöll - 50m salur
Auglýsing
Egilshöll - Loftbrautir
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing