LOKAÐ í dag vegna veðurs Skoða sem PDF skjal
Fimmtudagur, 05. maí 2016 11:17

Vegna veðurs verður skotsvæðið á Álfsnesi lokað í dag. Vindhviðurnar voru að togast uppí 46 m/sek rétt í þessu !!

AddThis Social Bookmark Button
 
Christensenmótið í loftgreinunum í kvöld Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 04. maí 2016 22:41

2016christmoturslit4mai2016 christensen123skammb2016 christensenghc2016 christensenasgChristensenmótið fór fram í Egilshöllinni í kvöld. Í loftskammbyssu sigraði Ásgeir Sigurgeirsson úr SR með 575 stig, Thomas Viderö úr SFK varð annar með 552 stig og í þriðja sæti hafnaði Jórunn Harðardóttir úr SR með 548 stig. Í loftriffli sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR með 593,9 stig, annar varð Guðmundur Helgi Christensen úr SR með 586,3 stig og þriðji Robert Vincent Ryan úr SR með 532,9 stig.2016 christensen123riffill

AddThis Social Bookmark Button
 
Íslandsmótið í Frjálsri skammbyssu á Álfsnesi Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 04. maí 2016 08:15

2016fpislmotridlarnew1fp50siluetfp athenes1896-sumner-paine_bgÍslandsmeistaramótið í Frjálsri skammbyssa fer fram á skotsvæði félagsins á Álfsnesi á sunnudaginn. Skráðir keppendur eru 10 talsins. Keppt er með einskota cal.22lr hlauplöngum skammbyssum, sem sérhannaðar eru fyrir þessa keppni. Þessi grein er ein sú elsta í Ólympíuprógramminu en keppt var í henni á fyrstu Ólympíuleikunum í Aþenu 1896. Þessi grein er eingöngu karlagrein á alþjóðavettvangi en Skotíþróttasambandið ákvað að opna hana fyrir bæði kyn og keppa þau því á jafnræðisgrundvelli hérlendis.

AddThis Social Bookmark Button
 
Hreindýraprófin hefjast 10.maí 2016 Skoða sem PDF skjal
Þriðjudagur, 03. maí 2016 22:16

tarfurgkgHreindýraprófin hefjast hjá okkur þann 10.maí og opnum við þá fyrir símann hjá prófdómara. Nánar hérna.

AddThis Social Bookmark Button
 
Tvö Íslandsmet á Íslandsmótinu í dag Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 01. maí 2016 16:22

2016tritrautislmot1maiurslit2016islmtritrautlidsrkvGuðmundur Helgi Christensen úr Skotfélagi Reykjavíkur setti nýtt glæsilegt Íslandsmet í 50 metra Þrístöðu riffli í dag en hann skoraði 1,107 stig í 3x40 skotum. Í öðru sæti varð Theódór Kjartansson úr Skotdeild Keflavíkur með 1,007 stig og í þriðja sæti Valur Richter úr Skotíþróttafélagi Ísafjarðar með 896 stig. Í kvennaflokki þar sem skotin eru 3x20 skot varð Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur Íslandsmeistari með 522 stig, önnur varð Íris Eva Einarsdóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur með 507 stig og í þriðja sæti varð Bára Einarsdóttir úr Skotíþróttafélagi Kópavogs með 497 stig. Í liðakeppni karla mætti aðeins ein sveit til leiks, sveit Skotíþróttafélags Ísafjarðar en hana skipuðu Valur Richter, Leifur Bremnes og Ívar Valsson en skorið var 2,644 stig. ÂÂ Í liðakeppni kvenna sigraði sveit Skotfélags Reykjavíkur á nýju Íslandsmeti, 1320 stig. Sveitina skipuðu Jórunn Harðardóttir, Íris Eva Einarsdóttir og Dagný H. Hinriksdóttir. Í öðru sæti var sveit Skotíþróttafélags Kópavogs skipuð Báru Einarsdóttur, Margréti L. Alfreðsdóttur og Guðrúnu Hafberg. Á Íslandsmeistaramótum er jafnframt keppt um Íslansmeistaratitil í flokkum og urðu þessir meistarar: Guðmundur H.Christensen í Meistaraflokki,Theódór Kjartansson í 3.flokki og Valur Richter í 0.flokki. Í kvennaflokki: Jórunn Harðardóttir í 2.flokki, Íris Eva Einarsdóttir í 3.flokki og Guðrún Hafberg í 0.flokki.

AddThis Social Bookmark Button
 
Íslandsmet í 50m riffli á Íslandsmótinu Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 01. maí 2016 16:05

2016jontorislm50m2016 60sk islmot 30 aprilJón Þór Sigurðsson, Skotíþróttafélagi Kópavogs, setti glæsilegt nýtt Íslandsmet í 50m liggjandi riffli þegar hann skoraði 623,7 stig á Íslandsmeistaramótinu í 50m liggjandi riffli sem fram fór í Íþróttahúsinu Digranesi laugardaginn 30. apríl. Þessi árangur Jóns Þórs dugði honum að sjálfsögðu til Íslandsmeistaratitils í karlaflokki en Guðmundur Helgi Christensen, Skotfélagi Reykjavíkur, varð annar með 615,5 stig. Guðmundur Helgi varð jafnframt Bikarmeistari keppnistímabilsins.

Þriðja sætið kom svo í hlut Vals Richters sem keppti fyrir Skotíþróttafélag Ísafjarðarbæjar en Valur skoraði 611 stig.
Í kvennaflokki varð Bára Einarsdóttir, Skotíþróttafélagi Kópavogs, (SFK) Íslandsmeistari en stig Báru voru 608,2 stig. Jórunn Harðardóttir, SR, varð önnur á 599 stigur og Íris Eva Einarsdóttir, einnig úr SR, varð þriðja með 568,3 stig. Í liðakeppni karla sigraði A sveit SFK með 1817,7 stig en sveitina skipuðu Stefán Eggert Jónsson og Arnfinnur Auðunn Jónsson auk Jóns Þórs. A sveit SÍ varð í öðru sæti liðakeppninnar með 1796,3 stig en sveit Ísfirðinganna skipuðu Valur Richter, Guðmundur Valdimarsson og Ívar Már Valsson.  A sveit SR varð þriðja skipuð þeim Guðmundi Helga, Þorsteini B. Bjarnarsyni og Þóri Kristinssyni. Skor þeirra var 1791 stig. Ein sveit mætti til leiks í liðakeppni kvenna, A sveit Skotíþróttafélags Kópavogs, skipuð Báru Einarsdóttur, Guðrúnu Hafberg og Margréti Lindu Alfreðsdóttur. Samanlagt skor þeirra var 1714,7 stig Á Íslandsmeistaramótinu var keppt í flokkum og varð Jón Þór Íslandsmeistari í Meistaraflokki. Valur Richter, SÍ, varð Íslandsmeistari í 1. flokki. Þórir Kristinsson, SR, varð Íslandsmeistari í 2. flokki og Bjarni Sigurðsson, Skotdeild Keflavíkur, varð Íslandsmeistari í 3. flokki. Í Meistaraflokki kvenna varð Bára Einarsdóttir Íslandsmeistari. Íris Eva varð Íslandsmeistari í 3. flokki og Guðrún Hafberg í 0 flokki.  Ljósm.JAK

AddThis Social Bookmark Button
 
<< Fyrsta < Fyrri 101 102 103 104 105 106 107 108 109 110 Næsta > Síðasta >>

Síða 102 af 296

Á Döfinni

Auglýsing
Álfsnes - leiðarvísir
Auglýsing
Álfsnes - Skotsvæði
Auglýsing
Egilshöll - 50m salur
Auglýsing
Egilshöll - Loftbrautir
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing