| 
		Fimmtudagur, 25. júní 2009 11:39	 | 
| 
Tímataflan og riðlaskiptingin er komin hérna vegna mótsins á laugardaginn í skeet. Keppendur eru 30 talsins og er reiknað með að úrslit hefjist kl.15:15 ef engar tafir verða á framkvæmdinni.
 | 
	| 
		Fimmtudagur, 25. júní 2009 09:41	 | 
| 
Opið verður á SKEET völlum fyrir skráða keppendur á Landsmótinu á laugardaginn milli kl. 16 og 21 á föstudeginum. Lokað er fyrir aðrar æfingar á svæðinu.
 | 
	| 
		Miðvikudagur, 24. júní 2009 15:29	 | 
| 
 Haldið verður Landsmót í Skeet n.k. laugardag á Álfsnesi. Keppt verður í 75 dúfu móti  auk finale og hefst það kl 10:00. Mótinu í Enskum Riffli ( 60 skot liggjandi ) sem halda átti á sama tíma hefur verið frestað ! 
 | 
	| 
		Sunnudagur, 21. júní 2009 14:03	 | 
| 
Á landsmótinu sem haldið var á Álfsnesi í gær í Frjálsri Skammbyssu sigraði Ásgeir Sigurgeirsson úr SR með 546 stig, sem er besta skor sem náðst hefur hérlendis í greininni. Annar varð Guðmundur Kr Gíslason einnig úr SR og Hannes G.Haraldson frá SFK varð þriðji. 
 | 
	| 
		Þriðjudagur, 16. júní 2009 21:03	 | 
| 
Opið verður næsta föstudag fyrir keppendur í Fríbyssu frá kl. 16:00 til kl 21:00. Svæðið er lokað að öðru leiti.
 |