Miðvikudagur, 11. nóvember 2009 11:22 |
Á landsmótið í loftbyssugreinunum á laugardaginn eru skráðir keppendur 24 talsins. Keppt verður í 2 riðlum sem hefjast kl.10 og 12. Úrslitin hefjast svo kl.14:30. Keppnisæfing er á föstudaginn kl.19-21. Riðlaskiptingin er komin hérna.
|
|
Mánudagur, 09. nóvember 2009 13:35 |
Á laugardaginn kemur verður haldið fyrsta landsmót vetrarins í kúlugreinum. Þar verður keppt í loftskammbyssu og loftriffli. Mótið fer fram í aðstöðu okkar í Egilshöllinni og hefst kl.10 að morgni. Skráningu á mótið lýkur annað kvöld en þá þurfa þau félög sem ætla að senda keppendur á mótið að vera búinn að senda okkur skráningar sínar. Okkar keppnisfólk þarf að hafa samband við skrifstofuna og skrá sig á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
Mánudagur, 26. október 2009 21:31 |
Lokakeppni Alþjóðaskotsambandsins stendur nú yfir í Kína. Þar keppa 10 efstu eftir keppnistímabilið í hverri grein. Nú stendur yfir keppni í kúlugreinunum og síðan hefst keppni í haglabyssunni seinna í vikunni. Fylgjast má með framvindu mála á heimasíðu Alþjóðaskotsambandsins ISSF.
|
Mánudagur, 19. október 2009 15:04 |
Munið að á miðvikudaginn er fyrsta mánaðarkeppnin í Egilshöllinni. Sjá má nánar um keppnina í fréttum 14.október.
|
Miðvikudagur, 14. október 2009 23:25 |
Starfsemi félagsins í Egilshöll hófs eftir mánaðarmótin í október. Æfingar eru með sama hætti og áður nema á miðvikudögum eru skammbyssuæfingar í 50 metra salnum og aðrar æfingar ekki leyfðar í salnum á þeim tíma. Þetta hefur engin áhrif á loftbyssusalinn, en æfingar í honum eru eins og áður. Stjórn félagsins hvetur fólk að mæta, hvort sem það er félagsmenn eða ekki og kynna sér aðstöðuna. Sjá nánar á opnunartímar hér að ofan og Skotstjórar veita upplýsingar á staðnum.
|
Miðvikudagur, 14. október 2009 09:33 |
Miðvikudagar eru nú fráteknir í Egilshöllinni fyrir sérstakar skammbyssuæfingar
|
Nánar...
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 261 262 263 264 265 266 267 268 269 270 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 266 af 291 |