Örn og Sigurþór á EM á Kýpur Skoða sem PDF skjal
Fimmtudagur, 17. maí 2012 17:02

Örn Valdimarsson og Sigurþór Jóhannesson héldu í morgun utan til keppni á Evrópumeistaramótinu í SKEET-haglabyssu. Mótið er haldið í Larnaca á Kýpur að þessu sinni.

AddThis Social Bookmark Button
 
Ásgeir að keppa á Ítalíu Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 16. maí 2012 12:50

 Ásgeir Sigurgeirsson er nú að keppa á heimsbikarmótinu á Ítalíu. Hann er sem stendur í 53.sæti í loftskammbyssunni. Hann keppir svo síðar í vikunni í frjálsri skammbyssu

 

AddThis Social Bookmark Button
 
.22 Silhouett-æfing i dag ! Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 16. maí 2012 10:29

Regluleg .22 Silhouett-æfing í dag milli 18:00 og 21:00. Silhouettan hefur forgang á þessum tíma í sumar og Skotstjóri í skýlinu er sá sem sér um æfinguna hverju sinni. Þeir sem ætla að nota skýlið fyrir stærri riffla verða að gera það með samþykki og í samráði við Skotstjóra.

AddThis Social Bookmark Button
 
Mótaskrá riffilgreina á Álfsnesi í ár ! Skoða sem PDF skjal
Föstudagur, 11. maí 2012 07:46

Mótaskrá nokkura riffilgreina er komin hér inn á siðuna. Búast má við einhverjum breytingum þegar fram líða stundir, m.a. eiga eftir að koma inn á mótaskránna mót í .22 Silhouette, og ráðgert er að halda mót í 300metra ISSF liggjandi-greininni.

AddThis Social Bookmark Button
 
Big Bore Riffilkeppni Hlað 20. maí 2012 Skoða sem PDF skjal
Þriðjudagur, 08. maí 2012 21:30

Big Bore riffilkeppni Hlað verður haldin 20. maí nk. á Álfsnesi. Sjá allar upplýsingar um keppnina á www.hlad.is.

AddThis Social Bookmark Button
 
Örn sigraði á landsmótinu Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 06. maí 2012 16:38

Örn Valdimarsson úr Skotfélagi Reykjavíkur sigraði á landsmótinu í skeet á Álfsnesi í dag með 129 stig eftir harða keppni við Pétur T.Gunnarsson úr SÍH sem endaði á 127 stigum. Þriðji varð svo Hákon Þ. Svavarsson  úr SFS með 123 stig. Margrét E.Hjálmarsdóttir úr SR sigraði í kvennaflokki og Dagný H.Hinriksdóttir SÍH varð önnur. Í unglingaflokki sigraði Sigurður U.Hauksson frá Húsavík. Í liðakeppninni sigraði A-sveit Skotfélags Reykjavíkur með Örn Valdimarsson, Þorgeir M.Þorgeirsson og Stefán G.Örlygsson innaborðs með 299 stig. Í öðru sæti A-sveit SÍH með 274 stig og í því þriðja B-sveit Skotfélags Reykjavíkur með Ellert Aðalsteinsson, Gunnar Sigurðsson og Guðmund Pálsson á 263 stig. Myndir komnar frá lokadeginum hérna.
skeet sr landsmot 5 6 mai 2012

AddThis Social Bookmark Button
 
<< Fyrsta < Fyrri 201 202 203 204 205 206 207 208 209 210 Næsta > Síðasta >>

Síða 210 af 296

Á Döfinni

Auglýsing
Álfsnes - leiðarvísir
Auglýsing
Álfsnes - Skotsvæði
Auglýsing
Egilshöll - 50m salur
Auglýsing
Egilshöll - Loftbrautir
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing