|
Þriðjudagur, 27. maí 2014 09:59 |
|
Aðalfundur félagsins verður í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal miðvikudaginn 4.júní kl.19:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
|
|
|
Mánudagur, 19. maí 2014 16:45 |
|
Big Bore - mótið verður haldið sunnudaginn 25. Maí kl. 12 á riffilvelli Skotfélags Reykjavíkur Álfsnesi. 10 skot fríhendis á 100 metrum með riffli yfir 8 mm hlaupvídd. Skràning i Hlað Bíldshöfða 12 fyrir 22. Maí. VEGLEG VERÐLAUN. Úrslitin eru á Hlað-síðunni...
|
|
Mánudagur, 19. maí 2014 13:05 |
|
Reglulegar Benchrest-æfingar (centerfire) eru að byjrja á Álfsnesi. Fyrsta reglulega æfing SR verður á fimmtudaginn 22. maí kl 19:00 til 22:00. Æfingar verða haldnar á fimmtudögum í sumar á þessum tíma og má gera ráð fyrir ýmiskonar æfingakeppnum á æfingatímum, sem verða ákveðnar á staðnum á hverri æfingu eftir atvikum.
|
|
Mánudagur, 19. maí 2014 08:41 |
|
Heimsbikarmótinu í Kazakhstan er að ljúka og endaði Ellert Aðalsteinsson í 47.sæti með 114 stig,(22-23-22-23-24) aðeins einu stigi frá Íslandsmetinu. Efstu 6 skotmennirnir fara í úrslit sem hefjast kl.09:45 að íslenskum tíma.
|
|
Sunnudagur, 18. maí 2014 20:41 |
|
    

 
A-liðið okkar varð í öðru sæti á landsmóti STÍ í dag með 293 enA-sveit SÍH sigraði með 295 stig. Sveitina okkar skipuðu Örn Valdimarsson (102), en hann varð jafnframt í 3ja sæti í einstaklingskeppninni, eftir bráðabana við Stefán G.Örlyggson úr SKA og okkar mann Kjartan Ö. Kjartansson, Sigurður U.Hauksson (97) og Guðmundur Pálsson (94). Í þriðja sæti varð B-sveit SR með 279 stig en hana skipuðu Gunnar Sigurðsson (80), Kjartan Ö.Kjartansson (102) og Þorgeir M. Þórgeirsson (97). Í einstaklingskeppninni sigraði Sigurþór Jóhannesson úr SÍH með 112 stig, annar varð Grétar M. Axelsson úr SA með 104 stig og Örn Valdimarsson úr SR með 102 stig.
|
|
Sunnudagur, 18. maí 2014 07:47 |
|
Ellert Aðalsteinsson er búinn að skjóta 2 umferðir af 5 og er með 45 stig (22-23). Efstur er Jesper Hansen frá Danmörku með 50 stig. Hægt er að fylgjast með gangi máli hérna. Skotnir eru 3 hringir í dag og svo 2 á morgun.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 141 142 143 144 145 146 147 148 149 150 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 147 af 298 |