Nýjársmót SR í Skeet í Þorlákshöfn laugardaginn 15.janúar Skoða sem PDF skjal
Miðvikudagur, 05. janúar 2022 15:55

Nýjársmót SR verður haldið laugardaginn 15.janúar á skotvelli Skotíþróttafélags Suðurlands. Mæting kl.10:30 en keppni hefst kl.11:00. 3 hringir, forgjafarkerfi SR, mótagjald kr.3,500. Gott væri að fá senda skráningu á tölvupóstinn okkar Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  

AddThis Social Bookmark Button
 
Landsmótunum um næstu helgi aflýst Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 01. janúar 2022 13:39

Vegna mikils fjölda smita í þjóðfélaginu hefur mótunum sem halda átti um næstu helgi verið aflýst.

8.og 9.janúar í Egilshöll

AddThis Social Bookmark Button
 
Lokað framyfir áramót í Egilshöll Skoða sem PDF skjal
Mánudagur, 27. desember 2021 14:41

egilsholl_loftbrautirYfir Jól-og áramót er lokað í Egilshöllinni frá og með 17.des 2021 og opnað að nýju þriðjudaginn 4.janúar 2022. Þetta gæti breyst í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu og verður það tilkynnt hér þegar þau mál skýrast.

AddThis Social Bookmark Button
 
Ásgeir og Dagný íþróttamenn SR 2021 Skoða sem PDF skjal
Fimmtudagur, 16. desember 2021 14:34

dagny islm 2012   006asgeir 2013 free  017Stjórn félagsins hefur valið eftirtalda sem Skotíþróttamenn félagsins árið 2021:

Í karlaflokki er Ásgeir Sigurgeirsson f.1985 Skotíþróttamaður SR 2021.

Hann tryggði sér keppnisrétt á Ólympíuleikunum í Tókýó 2021 með frábærum árangri á erlendum vettvangi undanfarin ár. Hann hefur sigrað á öllum innlendum mótum í sínum greinum, loftskammbyssu og frjálsri skammbyssu,  svo lengi sem elstu menn muna. Hann er sem stendur í 45.sæti á Heimslistanum og í 25.sæti á Evrópulistanum.

Í kvennaflokki er Dagný Huld Hinriksdóttir f.1979 Skotíþróttamaður SR 2021.

Hún varð Íslandsmeistari í haglabyssugreininni Compak Sporting í sumar og vann einnig til verðlauna á Landsmótum STÍ í þeirri grein. Einnig vann hún til fjölda verðlauna í haglabyssugreininni Skeet. Hún keppti í ár fyrir Íslands hönd á Heimsbikarmótinu á Ítalíu og á Evrópumeistaramótinu í Króatíu, þar sem hún stóð sig með prýði.

AddThis Social Bookmark Button
 
Jórunn og Helgi með gullið í dag Skoða sem PDF skjal
Sunnudagur, 12. desember 2021 17:50

Á Landsmóti STÍ í 50m Þrístöðuriffli, sem fram fór í Reykjavík í dag, sigraði Guðmundur Helgi Christensen úr SR í karlaflokki með 1050 stig, annar varð Valur Richter úr SÍ og Leifur Bremnes SÍ varð þriðji með 917 stig. Í kvennaflokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR með 1065 stig, Íris Eva Einarsdóttir úr SR varð önnur með 958 stig og Guðrún Hafberg SÍ í því þriðja með 903 stig. Sveit SÍ hlaut gullið með 2799 stig. Nánar á úrslitasíðu STÍ:

AddThis Social Bookmark Button
 
Viktoría Erla bætti Íslandsmetið í Unglingaflokki í dag Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 11. desember 2021 16:19

50m11122021imgviktoria50m11122021img_0835viktoriaislmet50m11122021img_078850m11122021img_080550m11122021img_0822Á Landsmóti STÍ í 50 metra liggjandi riffli (prone) féllu tvö Íslandsmet. Fyrst í karlaflokki þar sem Jón Þór Sigurðsson úr SFK sigraði með 624,3 stig og síðar í Unglingaflokki kvenna þar sem Viktoría Erla Bjarnarson úr SR sigraði með 576,9 stig og Karen Rós Valsdóttir SÍ varð önnur með 515,7 stig. 

Í öðru sæti í karlaflokki varð Valur Richter SÍ með 606,7 stig og þriðji varð Guðmundur Valdimarsson SÍ með 601,0 stig.

Í kvennaflokki sigraði Jórunn Harðardóttir úr SR með 613,9 stig, önnur varð Íris Eva Einarsdóttir SR með 593,5 stig og þriðja varð Guðrún Hafberg úr SÍ með 575,2 stig. Í liðakeppni karla sigraði sveit SÍ með 1.808,4 stig og sveit SR varð önnur með 1.753,8 stig. Í kvennaflokki hlaut sveit SR gullið með 1.784,3 stig og sveit SÍ silfrið með 1.604,2 stig. Nánari úrslit eru á úrslitasíðu STÍ, og eins koma myndir inná Facebook síðu SR.

AddThis Social Bookmark Button
 
<< Fyrsta < Fyrri 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 Næsta > Síðasta >>

Síða 21 af 286

Á Döfinni

Auglýsing
Álfsnes - leiðarvísir
Auglýsing
Álfsnes - Skotsvæði
Auglýsing
Egilshöll - 50m salur
Auglýsing
Egilshöll - Loftbrautir
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing