Mánudagur, 21. ágúst 2023 10:33 |
Vegna framkvæmda í Egilshöllinni er lokað fyrir keppnisfólk okkar til æfinga út þessa viku. Hægt verður að komast að á laugardaginn 26.ágúst
|
|
Mánudagur, 31. júlí 2023 07:24 |
Keppnislið félagsins gerði ágæta ferð á Íslandsmótið í Compak Sporting sem haldið var á Akureyri um helgina, þrátt fyrir vallarleysið á heimavelli í sumar. Felix Jónsson varð Íslandsmeistari unglinga, Jón Valgeirsson varð í öðru sæti í karlaflokki , Dagný Huld Hinriksdóttir hlaut silfrið í kvennaflokki og Þórey Inga Helgadóttir bronsið.
|
Miðvikudagur, 26. júlí 2023 11:43 |
Hinu árlega SR-OPEN móti, sem halda átti 1.-3.september 2023 hefur verið aflýst. Keppni í skeet haglabyssu fellur alveg niður en Íslandsmótið í Bench Rest VFS, sem halda átti samhliða, hefur verið flutt til Húsavíkur.
|
Sunnudagur, 28. maí 2023 11:09 |
Landsmót í haglabyssugreininni Compak Sporting fór fram á velli Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar að Iðavöllum í dag. Jón Valgeirsson úr SR sigraði með 138 stig, Ævar S.Sveinsson úr SÍH varð annar með 135 stig og í þriðja sæti hafnaði Aron K. Jónsson úr SÍH með 134 stig.
|
Mánudagur, 15. maí 2023 18:28 |
Viðtal á Rás 2 í morgun við framkvæmdastjórann má finna hérna. Það hefst á 34. mínútu.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 13 af 293 |