Sunnudagur, 12. júní 2022 15:39 |
Pétur T. Gunnarsson úr SR sigraði á Landsmóti STÍ sem haldið var í Þorlákshöfn um helgina. Daníel H. Stefánsson úr SR varð í 4.sæti. Nánar á úrslitasíðu STÍ.
|
|
Sunnudagur, 29. maí 2022 19:14 |
Skotfélag Reykjavíkur verður 155 ára þann 2.júní ! Í tilefni þess býður félagið til morgunkaffis í félagsheimili þess á skotsvæðinu á Álfsnesi kl.10-12 laugardaginn 4.júní
 Myndir frá kaffiboðinu eru hérna.
|
Sunnudagur, 29. maí 2022 18:52 |
Pétur T. Gunnarsson úr SR, sigraði á Landsmóti STÍ í haglabyssugreininni Skeet, sem haldið var á Akranesi um helgina. Í öðru sæti varð Stefán G. Örlygsson úr SKA og Aðalsteinn Svavarsson úr SÍH tók bronsið. Árangur Péturs í úrslitunum er nýtt Íslansmet. Lið okkar skipað þeim Pétri ásamt Dagnýju H. Hinriksdóttur og Þóreyju Helgadóttur hlaut bronsverðlaun í liðakeppninni. Nánar á úrslitasíðu STÍ.
|
Mánudagur, 16. maí 2022 14:46 |
Á Landsmóti STÍ í haglabyssugreinni Skeet, sem haldið var hjá Skotdeild Keflavíkur um helgina, sigraði Pétur T. Gunnarsson úr SR með 57 stig (111), Daníel H. Stefánsson úr SR varð annar með 47 stig (89) og í þriðja sæti hafnaði Guðmundur Pálsson úr SR. A-lið Skotfélags sigraði liðakeppnina, A-lið SÍH varð í öðru sæti og B-lið SÍH í því þriðja. Nánar á úrslitasíðu STÍ hérna.
|
Sunnudagur, 08. maí 2022 11:20 |
Íslandsmeistaramótið í loftriffli fór fram í Egilshöllinni í dag. Íslandsmeistari í karlaflokki varð Guðmundur Helgi Christensen úr SR með 579,5 stig, annar varð Robert Vincent Ryan úr SR með 546,9 stig og þriðji varð Þorsteinn B. Bjarnarson úr SR með 519,4 stig. Í kvennaflokki sigraði Íris Eva Einarsdóttir úr SR með 586,5 stig og Jórunn Harðardóttir úr SR önnur með 583,1 stig. Einnig voru Íslandsmeistarar í flokkum krýndir. Nánar á úrslitasíðu STÍ, www.sti.is og myndir eru hérna
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 20 af 291 |